Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 24. 2015 | 10:00

Hver er kylfingurinn: Kevin Kisner?

Bandaríski kylfingurinn Kevin Kisner sigraði nú um helgina í 1. móti sínu á PGA Tour, en hann var þar áður búinn að ná þeim glæsilega en samt vonbrigðaárangri að verða 4 sinnum í 2. sæti á mótum PGA Tour.

Hver er þessi viðkunnalegi kylfingur?

Kevin Kisner fæddist 15. febrúar 1984 í Aiken, Suður-Karólínu og er því 31 árs. Kisner var í South Aiken High School í Suður-Karólínu, þar sem hann var í golfliði skólans og vann m.a. 2 4A meirstaramót í ríkinu (ens. State Championships.)

Kisner útskrifaðist frá University of Georgia 2006 með gráðu í viðskiptafræði og eftir að hafa spilað golf með golfliði skólans í 4 ár. Hann var sá fyrsti í sögu skólans til þess að verða útnefndur All-American 4 sinnum. Eftir útskrift 2006 gerðist Kisner atvinnumaður í golfi.

Árið 2008 spilaði Kisner á eGolf Tour og varð í 3. sæti peningalista þeirra mótaraðar; varð 7 sinnum meðal 10 efstu og sigraði m.a. Bermuda Run Open.

Árið 2009 fékk Kisner tækifæri til að spila á 6 Web.com mótum m.a. á undanþágu styrktaraðila og vegna góðs gengis í mótum. Hann náði niðurskurði í fyrstu 2 mótum sínum. Jafnframt spilaði Kisner á eGolf Tour og the NGA Hooters Tour.

Árin 2010-2013 spilaði Kisner á Web.com og hefir sigrað tvívegis á þeirri mótaröð: Í fyrsta sinn á 2010 Mylan Classic presented by CONSOL Energy (vann í kjölfarið í fyrsta sinn kortið sitt á PGA Tour fyrir keppnistímabilið 2011) og síðan í fyrra, 2013 á Chile Classic, sem m.a. varð til þess að hann varð í 13. sæti peningalistans og fékk aftur kortið sitt á PGA Tour. Það sem af er ársins 2014 er hann búinn að vinna sér inn $550,088 á PGA Tour. Besti árangurinn til þessa á PGA Tour er 6.sætið á Wells Fargo Championship. Kisner er sem stendur í 278. sætinu á heimslistanum.

Kisner með dóttur sína í fanginu að sigri loknum á The RSM Classic - fyrsta mótinu sem hannn sigraði á, á PGA Tour

Kisner með dóttur sína í fanginu að sigri loknum á The RSM Classic – fyrsta mótinu sem hannn sigraði á, á PGA Tour

Ýmislegt um Kisner:

Hann kvæntist konu sinni Brittany 2012, en hann segir hann „ást ævi sinnar“ (ens. „the love of his life“ ). Saman eiga þau dótturina Kathleen.

Kevin, Kathleen og Brittany Kisner

Kevin, Kathleen og Brittany Kisner

Kevin Kisner á 1 bróður og 1 systur.

Þjálfari hans heitir John Tillery.

Uppáhaldsgolfvöllur sem Kisner hefir spilað er Augusta National en hann myndi gjarnan vilja spila Pine Valley.

Kisner ferðast aldrei án tölvu sinnar. Fyrsti bíllinn hann var Chevrolet Blazer, en nú keyrir hann um á Ford F-150.

Uppáhalds háskólalið hans í Bandaríkjunum eru Georgia Bulldogs og uppáhalds atvinnumannalið eru the Carolina Panthers

Kisner notar alltaf höfuðhliðina til þess að merkja golfbolta sinn.

Uppáhaldssjónvarpsþáttur hans er „Sports“ og uppáhaldsskemmtikraftur hans er Colt Ford.

Uppáhaldsmatur Kisner er væn steik og uppáhaldsdrykkur gott vín.

Í uppáhaldsholli hans eru hann sjálfur auk Ben Hogan, Arnold Palmer og pabba hans.

Meðal þess sem hann á eftir ógert en vildi gjarnan gera er að veiða Blue Marlino og keyra það sem á ensku nefnist stock car.

Kisner gefur tilbaka en hann styður The First Tee program í Bandaríkjunum.