Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 3. 2015 | 08:00

Hver er kylfingurinn: Justin Thomas?

Bandaríski kylfingurinn Justin Thomas sigraði á fyrsta PGA Tour mótinu sínu nú um helgina, sunnudaginn 1. nóvember 2015.

Nafnið hefir ekki heyrst oft í golffréttum enda er hér um ungan og feykiefnilega kylfing að ræða.

Hver er kylfingurinn: Justin Thomas?

Justin Thomas,  varð í 5. sæti á Web.com Tour Finals í september 2014 og var ungur (21 árs) kominn með fullan keppnisrétt á PGA Tour; í fyrsta skipti keppnistímabilið 2014-2015.  Það er því aðeins á 2. keppnistímabili sínu sem Thomas sigrar á PGA Tour móti, sem er stórglæsilegt í þeirri miklu samkeppni sem er á þessari bestu mótaröð heims!

Litið er á Thomas sem mikils framtíðarmanns í bandarísku golfi – enda miklir golfhæfileikar á ferð þar sem Thomas er.

Justin Thomas fæddist í Louisville, Kentucky, 29. apríl 1993 og er því aðeins 22 árs og sá yngsti sem hlotið hefir kortið sitt á PGA Tour.

Thomas lék í bandaríska háskólagolfinu með golfliði the University of Alabama, þar sem hann vann einstaklingskeppnina 6 sinnum. Hann spilaði líka í NCAA Division I Championship liðinu árið 2013. Thomas vann m.a. Haskins Award árið 2012 sem besti kylfingurinn í háskólagolfinu.

Sem áhugamaður lék Thomas í Wyndham Championship á PGA Tour og varð 3. yngsti kylfingurinn til þess að komast í gegnum niðurskurð á PGA Tour móti aðeins 16 ára, 3 mánaða og 24 daga.

Thomas gerðist atvinnumaður í golfi 2013, aðeins 20 ára og komst strax á Web.com Tour gegnum úrtökumót.

Hann vann fyrsta mótið sem hann lék í sem atvinnumaður þ.e. Nationwide Children’s Hospital Championship, 2014.

Thomas hefir þrátt fyrir ungan aldur spilað í mörgum PGA Tour mótum, en besti árangur hans fram til dagsins í gær var T-10 árangur í Farmers Insurance Open árið 2014.

Það verður spennandi að fylgjast með Justin Thomas í vetur!