Jonas Blixt Hver er kylfingurinn: Jonas Blixt?
Svíinn Jonas Blixt náði 4. sætinu á PGA Championship risamótinu um s.l. helgi. Hann er ekki eitt af þekktari nöfnunum á PGA Tour en er hægt og rólega að vinna sér nafn með góðri frammistöðu eins og á PGA Championship s.l. helgi.
En hver er kylfingurinn Jonas Blixt kunna sumir að spyrja?
Jonas Blixt fæddist í Nässjö í Svíþjóð 24. apríl 1984 og er því 29 ára. Hann á sama afmælisdag og ekki ófrægari kylfingar en Lee Westwood og Lydia Ko. Blixt spilaði í bandaríska háskólagolfinu með FSU þ.e. Florida State University og var hann m.a. second team All-American 2007 og first team All-American árið 2008. Hann var All-ACC sem unglingur og í first team All-ACC árið 2008. Síðan var hann PING All Southeast Region árið 2008. Hann sigraði á Inverness Intercollegiate árið 2007 og var 5 sinnum meðal efstu 5 í einstaklingskeppni og auk þess tvisvar í 6. sæti í öðrum háskólamótum 2008. Hann vann 4 mót á háskólaferli sínum og var útnefndur All-Nicklaus heiðurfélagi árið 2008.
Blixt keppti í Palmer Cup árin 2007 og 2008.
Atvinnumannsferill Blixt
Blixt gerðist atvinnumaður 2008 og keppti á einu Nationwide Tour móti á því keppnistímabili. Árið 2009 tók Blixt þátt í öðrum 20 mótum og vann sér inn yfir $120,000. Þó Blixt spilaði aðallega í Bandaríkjunum þá var hann einnig að spila á Áskorendamótaröð Evrópumótaraðarinnar.
Blixt fékk kortið sitt á PGA Tour árið 2012 eftir að hafa orðið í 5. sæti á stigalista Nationwide Tour 2012. Í maí 2012 varð Blixt T-3 á HP Byron Nelson Championship, en hann var jafn öðrum í toppsætinu þar til skolli á 71. holu gerði vonir hans um sinn fyrsta sigur á PGA Tour að engu. Eftir að hafa tekið þátt í the Memorial Tournament í júní 2012 missti Blixt tvo mánuði af keppnistímabilinu vegna rifbeinsbrota. Blixt hóf aftur að spila á PGA Tour Fall Series og varð aftur í 3. sæti á Justin Timberlake Shriners Hospitals for Children Open.
Vikuna þar á eftir á Frys.com Open, vann Blixt nýliðann Jason Kokrak og gamla brýnið Tim Petrovic með 1 höggi og var fyrsti sigur hans á PGA Tour staðreynd ….. og það eftir að hafa aðeins spilað í 19 mótum á PGA Tour.
Í ár sigraði Blixt á Greenbrier Classic átti tvö högg á 4 leikmenn sem urðu í 2. sæti þ.á.m. Johnson Wagner, sem átti 4 högg á Blixt eftir 3. hring. Með þessum sigri ávann Blixt sér m.a. þátttökurétt í Masters Tournament árið 2014. Þó PGA Championship 2013 hafi aðeins verið 2. risamót á ferli Blixt þá náði hann engu að síður 4. sætinu, sem er stórglæsilegur árangur hjá þessum unga Svía!
Hér má sjá yfirlit yfir sigra Jonas Blixt sem áhugamanns:
- 2001 European Boys Championship
- 2005 Gator Invitational
- 2006 Shoal Creek Intercollegiate
- 2007 Inverness Intercollegiate, ACC Championship
PGA Tour sigrar:
| Nr. | Dags. | Mót | Sigurskor | Skor | Högg á næsta mann | 2. sæti |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 14. okt 2012 | Frys.com Open | 66-68-66-68=268 | –16 | 1 högg | |
| 2 | 7. júlí 2013 | Greenbrier Classic | 66-67-67-67=267 | –13 | 2 högg |
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024



