Hver er kylfingurinn: JB Holmes? (2/2)
Hér verður fram haldið með 2. hluta af greininni: Hver er kylfingurinn: JB Holmes?
Leikstíll
Holmes, ásamt félögum sínum sem voru nýliðar á sama ári og hann á PGA Tour, 2006, s.s. Camilo Villegas og Bubba Watson,er þekktur fyrir að vera alger sleggja og slær boltann meira en 300 yarda (u.þ.b. 274 metra), sem gerir hann að nr. 2 í mestri högglengd á eftir þeim sem er í 1. sæti þ.e. Bubba Watson. Holmes spilar vellina sem rútínu þannig að hann slær eins langt og hann getur með drævernum, sem er ekki ólík fílósofía og „Grip it and Rip It“ hjá Daly og notar hagræðið sem mikil lengd hans gefur honum til þess að komast nálægt flöt og nota síðan bara fleygjárn eða stutt járn inn á flöt. Þetta er ekkert nýr leikstíll, en margir gagnrýnendur hafa bent á á stíll Holmes hafi komið fram með nýja kynslóð kylfinga sem leggur áherslu á að dúndra boltanum eins langt og þeir geta og notafæra sér síðan það nýjasta í golfútbúnaði með því að ná boltanum t.a.m. úr röffi á flöt og þannig fækki höggstyttri, nákvæmari kylfingum.
Ryder Cup 2008
Í Ryder Cup, 2008 vann Holmes Søren Hansen 2&1 í tvímenningi sunnudagsins og kom Bandaríkjunum einu stigi frá því að ná Ryder bikarnum. Jim Furyk vann síðan Miguel Ángel Jiménez á 17. holu og náði bikarnum í hendur Bandaríkjamanna. Holmes og annar liðsfélagi, Kenny Perry, voru útnefndir Kentucky-búar ársins 2008 af Kentucky Monthly magazine.
Heilaskurðaðgerð
Eftir að hafa verið á 80 eftir 1. hring á PGA Championship risamótinu í ágúst 2011 dró Holmes sig úr mótinu. Hann hafði verið að fást við mikinn svima (ens.: vertigo) í marga mánuði og var greindur með Chiari vansköpun á heila. Hann gekkst undir aðgerð á heila 1. september 2011 og aðeins mánuði síðar komust læknar að því að Holmes var með ofnæmisviðbrögð við límefninu sem notað var í títaníumplötu sem komið hafði verið fyrir í höfuðkúpu hans. Hann var fluttur með þyrlu frá heimili sínu í Kentucky til John Hopkins í Baltimore og gekkst undir aðra skurðaðgerð. Holmes sneri aftur á PGA Tour seint í janúar 2012 og tók þátt í the Farmers Insurance Open.
Árin 2012–15: Batinn og Endurkoman
Eftir heilaaðgerðina spilaði Holmes í 26 mótum 2012. Meiðsli á olnboga og ökkla urðu til þess að hann spilaði bara í 6 mótum 2013 og spilaði ekki aftur þar til á the Dunlop Phoenix Tournament á Japan Golf Tour. Holmes fékk þátttökurétt á grundvelli framlengingar á gundvelli veikinda og fullnægði skilyrðunum með góðum inntektum á Zurich Classic of New Orleans 2014, þar sem hann varð T-11. finishing T11. Hann þurfti að verða T63 eða betra á the Wells Fargo Championship til þess að vinna sér inn þátttöku á Players Championship 2014 í gegnum FedEx Cup stig. Holmes náði að sigra í fyrsta sinn á 6 árum og vann sér aftur inn þátttökurétt á PGA Tour til keppnistímabilsins 2015-2016 og fór úr 242. sætinu í 68. sætið á heimslistanum. Með sigrinum vann Holmes sér einnig inn þátttökurétt á PGA Championship risamótið 2014, sem fram fór í Valhalla Golf Club í Louisville, Kentucky.
Í febrúar 2015, tapaði Holmes í 4 manna bráðabana á the Farmers Insurance Open. Hann hafði ásamt öðrum verið í forystu fyrir lokahringinn þ.e. eftir 54 leiknar holur ásamt Harris English, en var bara á pari lokahringinn, en komst engu að síður í bráðabanann. Á fyrstu holu bráðabanans náði Holmes fugli og fór á 2. holu bráðabanans ásamt Jason Day, eftir að Harris English og Scott Stallings duttu út með pör. Á par-3 2. holu bráðabanans yfirsló Holmes flötina og komst ekki úr röffinu þar og inn á flöt í færri en 2 höggum, sem gerði eftirleikinn fyrir Day auðveldan, hann tvípúttaði af 5 metra færi fyrir sigri.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
