Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2015 | 20:00

Hver er kylfingurinn: Inbee Park?

Suður-Kóreanski kylfingurinn Inbee Park sigraði í gær á Lorena Ochoa Invitational sem fram fór í Mexíkó. Þetta var 5. sigur Park á LPGA mótaröðinni árið 2015.

Hver er þessi kylfingur frá Suður-Kóreu?

Inbee fæddist í Seúl í Suður-kóreu 12. júlí 1988 og er því 27 ára. Hún byrjaði að spila golf 10 ára. Eftir að hún fluttist til Bandaríkjanna sigraði hún í 9 mótum AJGA (stytting á American Junior Golf Association). Svo varð hún í 2. sæti á US Women´s Amateur. Hún sigraði US Girls Junior 2002 (14 ára) og varð í 2. sæti bæði 2003 og 2005.

Inbee var boðið á Kraft Nabisco risamótið í boði styrktaraðila meðan hún var enn áhugamaður á árunum 2004-2006 og tók þar að auki 3 sinnum þátt í LPGA Takefuji Classic og varð 2var meðal 10 efstu.

Inbee Park

Inbee Park

Árin sem atvinnumaður

2006

Árið 2006 gerðist Inbee Park atvinnumaður. Eftir útskrift frá Bishop Gorman High School í Las Vegas, Nevada, bað Park um undanþágu til að mega spila á LPGA 17 ára en reglur LPGA kveða á um að keppandi verði a.m.k. að vera orðin 18 til að mega keppa. LPGA synjaði beiðni Park, þannig að hún skráði sig í University of Nevada, Las Vegas þar sem hún býr en hætti fljótlega og hóf ferilinn á Duramed Futures Tour þar sem aldursmörkin eru 17 ára. Árið 2006 varð hún 11 sinnum meðal 10 efstu á mótum Futures Tour. Hún varð nr. 3 á peningalistanum og hlaut keppnisrétt á LPGA fyrir keppnistímabilið 2007.

2007

Á nýliðaári sínu á LPGA varð Inbee Park 4. á U.S. Women’s Open og T-2 á Safeway Classic.Hún varð nr. 37. á peningalistanum og sú 4. besta af nýliðum þess árs.

2008

Þann 29. júní 2008 sigraði Inbee á US Women´s Open í Interlachen Country Club í Edina, Minnesota og var það fyrsti sigur hennar á LPGA…. og ekkert smá sigur svona í fyrsta sinn …. fyrsti sigur hennar var sigur á risamóti. Hún var aðeins 19 ára þá og fór í sögubækurnar, fyrir að vera sú yngsta til að sigra mótið. Sigurskorið var 72-69-71-71 samtals 9 undir pari og þar með vann hún Helen Alfredsson frá Svíþjóð með 4 höggum.

Inbee Park

Inbee Park

2009
Eftir alla velgengnina 2008 átti Inbee erfitt 2009 og varð aðeins 4 sinnum meðal efstu 10 og varð í 50. sæti á opinberum peningalista LPGA.

2010 og 2011

Þessi ár voru ágætis ár á ferli Park sem atvinnumanns. Árið 2010 var hún t.a.m. með 10 efstu í öllum 4 risamótunum, vann tvívegis í Japan og var í 12. sæti Rolex-heimslistans.

2012

Árið 2012 sigraði hún loks í móti og aftur engu smámóti heldur sjálfu Evían Masters í Frakklandi þ.e. 29. júlí 2012. Þar áður í júní var hún í hörku-4-stúlkna umspili á Manulife Financial Classic, en þar var það Brittany Lang sem hafði sigur. Það var því komið að Inbee að vinna aftur!

2013

Segja má að þetta hafi verið hápunkturinn á ferli Inbee til þessa en hún sigraði m.a. í 3 fyrstu risamótum ársins í kvennagolfinu og hafði tækifæri á Grand Slami, sem síðan varð ekkert úr – en þetta er engu að síður stórglæsilegt hjá Inbee. Inbee sigraði á eftirfarandi risamótum kvennagolfsins: Kraft Nabisco (7. apríl 2013); LPGA Championship (9. júní 2013) og US Women´s Open (30. júní 2013). Að sigrað í 3 risamótum sama árið hafði einungis Babe Zaharias tekist 1950 þegar hún vann öll 3 risamót kvennagolfsins það ár. Auk þess sigraði Inbee í 3 öðrum mótum á LPGA og því 6 LPGA mót á sama ári. Hún var nr. 1 á Rolex-heimslistanum það árið!

Inbee Park

2014

Þann 2. nóvember 2014 sigraði Inbee á á Fubon LPGA Taiwan Championship, sem fram fór í Miramar G&CC í Tapei, Taíwan. Þetta var3. sigur hennar á LPGA á árinu 2014, en fyrr um árið sigraði Inbee líka (9. mars 2013) á Mission Hills World Ladies Championship sem var hluti af Evrópumótaröð kvenna. Hún sigraði einnig í liðakeppnishluta mótsins með löndu sinni So-Yeon Ryu. LPGA mótin sem Inbee sigraði á voru 1. Manulife Financial LPGA Classic (8. júní 2014) en þar átti Inbee 3 högg á Cristie Kerr og síðan sigraði Inbee líka 2. í 5. risamóti sínu þ.e. varði titil sinn á LPGA Championship (17. ágúst 2014) en þar varð hún að hafa fyrir hlutunum, þar sem hún lenti í bráðabana við Brittany Lincicome, sem hún hafði þó betur gegn!

2015

Inbee vann 13. LPGA titil sinn 8. mars á árinu. Hún var á 66 höggum á 1. hring á HSBC Women’s Champions í Singapúr Eftir að hafa náð að vera á skollalausum lokahring upp á 65 högg á  Honda LPGA Thailand í Chonburi, sem var mót sem hún vann ekki var hún með 4 skollalausa hringi í röð í Singapúr. Park, sem var nr. 2 á Rolex-heimslista kvenna var pöruð með nr. 1 á heimslistanum Lydiu Ko og nr. 3  Stacy Lewis á lokahringum. Inbee var með 2 högga forystu inn ílokahringinn en lauk keppni á samtals 15 undir pari, 70 högg lokahringinn – Ko var 2 höggum a eftir Inbee.

Park sigraði í 14. móti sínu á LPGA á the Volunteers of America North Texas Shootout. Hún var á skollalausum 6 undir pari hring upp á 65 högg á lokahringnum og sigraði bandaríska kylfinginn Cristie Kerr og Park Hee-Young frá Suður-Kóreu með 3 högugm.

Í júní vann Inbee 15. titil sinn á LPGA mótaröðinni og 6. risamótstitil sinn þegar hún sigraði á Women’s PGA Championship, átti hvorki meira né minna en 5 högg á þá sem kom næst Kim Sei-young. Með þessum sigri varð Inbee aðeins 2. kylfingurinn á eftir Anniku Sörenstam til þess að sigra þrívegis í röð á Women’s PGA Championships.

Inbee Park vann 16. titil sinn á Opna breska kvenrisamótinu, var 3 höggum á undan þeirri sem varð í 2. sæti, löndu sinni Ko Jin-young. Þetta var 7. risamótstitill hennar og Inbee var 7. kylfingurinn í sögunni til að sigra á 4 ólíkum risamótum. Það eru 5 risamót á LPGA og Inbee á nú aðeins eftir að sigra á Evían Masters risamóti kvennagolfsins, en í ár varð hún T-8 á því móti.

Þegar þetta er ritað (16. nóvember 2016) er Inbee Park alls búin að sigra í alls 25 mótum á ferli sínum sem atvinnumaður í golfi; þ.e. 17 mótum á LPGA, 3 mótum á Evrópumótaröð kvenna (LET), 4 á japanska LPGA auk 3 annarra og síðan í 7 risamótum kvennagolfsins.

Sem stendur er Lydia Ko nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna.  En kannski það verði ekki langt þar til Inbee nær aftur toppsætinu með svona áframhaldi!!!