Hver er kylfingurinn: In Kyung Kim?
In-Kyung oft kölluð „I. K.“ Kim sigraði sl. helgi á Shoprite Classic mótinu á LPGA mótaröðinni og er þetta 5. LPGA sigur Kim.
IK Kim fæddist fæddist 13. júní 1988 og er því 28 ára.
Kim er frá S-Kóreu en býr í Rancho Santa Fe í Kaliforníu.
Hápunktar áhugamannsferils Kim
Kim var í kóreanska kvennagolflandsliðinu 2003 og 2004 og vann 3 mót á International Junior Golf tour. Árið 2005 spilaði hún í mótum á vegum bandaríska golfsambandsins (the American Junior Golf Association – skammst. AJGA) og þar sigraði hún m.a. 2005 á Hargray Junior Classic. Árið 2005 vann hún líka U.S. Girls’ Junior og var í 1. sæti í höggleikshluta U.S. Women’s Amateur, það ár.
Atvinnumannsferill
Kim gerðist atvinnumaður í golfi 2006 eftir að hún varð T-1 í lokaúrtökumóti LPGA það ár. Hún var því komin með kortið sitt á LPGA fyrir keppnistímabilið 2007, þegar í 1. tilraun sinni.
Á nýliðaári sínu 2007 var hún með 4 topp-10 árangra á LPGA Tour. Árið 2008 var hún 7 sinnum meðal efstu 10 og krækti sér m.a. í fyrsta sigur sinn á the Longs Drugs Challenge.
Í júní 2009, vann IK Kim sér inn 2. titil sinn á LPGA með 1 höggs sigur á löndu sína Se Ri Pak á LPGA State Farm Classic í Illinois. Í desember 2009 vann Kim 3. atvinnumannstitil sinn þegar hún sigraði á Dubai Ladies Masters á LET.
Kim vann 4. titil sinn sem atvinnumaður og 3. LPGA titil sinn á Lorena Ochoa Invitational. Deginum eftir að hún sigraði tilkynnti hún að hún hefði gefið allt verðlaunafé sitt $220,000 til góðgerðamála; helminginn til the Lorena Ochoa Foundation, sem styður við menntun barna í Mexíkó og hinn helminginn til bandarískrar góðgerðarstofnunar. Gjöf hennar var 20% af öllu verðlaunafé sem hún hafði unnið sér inn til 2010.
Árið 2010 var Kim valinn nýliði ársins á LET. Hún spilaði á LET eftir að sigra í Dubai Ladies Masters í December 2009.
Eftir 2010, var verðlaunafé hennar €193,154.69 í fjórum LET mótum, þar af voru 3 topp-10 árangrar.
Það er fyrrum kylfusveinn á PGA Tour, Michael Dunsmore, sem er á pokanum hjá Kim. Snemma árs 2010 keypti Kim sér hús í Rancho Santa Fe,Kaliforníu sem er í úthverfi San Diego. Hún æfir í Fairbanks Ranch Country Club, þar sem hún er heiðursfélagi.
Á lokadegi Kraft Nabisco Championship, 2012 átti Kim 30 cm pútt á 18. flöt til að sigra í fyrsta risamóti sínu en púttið fór framhjá og hún varð að fara í bráðabana við Sun-Young Yoo, sem Yoo vann. IK Kim hefir ekki enn tekist að sigra á risamóti.
Annar sigur Kim á Evrópumótaröð kvenna (LET) kom 6. júlí 2014 á ISPS Handa Ladies European Masters, en skor hennar þar var 18 undir pari 270 högg (71-68-63-68) en þar áttti Kim 5 högg á ástralska kylfinginn Nikki Campbell.
Síðan tók við annað sigurtímabil hjá Kim 2016. Fyrst sigraði hún 11. september 2016 á ISPS Handa Ladies European Masters á LET og svo 2. október sigraði Kim á 4. LPGA móti sínu; Reignwood LPGA Classic.
Fimmti sigurinn á LPGA kom síðan s.s. greint er frá í byrjun nú um helgina á Shoprite Classic, þ.e. 4. júní 2017.
Alls hefir IK Kim því sigrað 5 sinnum á LPGA og 3 sinnum á LET.
Þess mætti í lokinn geta að IK Kim tók þann 22. maí sl. þátt í úrtökumóti fyrir US Open kvenna 2017 og varð í 1. sæti í The Country Club at DC Ranch úrtökumótinu sem fram fór í Scottsdale, Arizona. Kim lék hringina 2 á samtals 140 höggum. Jafnar í 2. sæti urðu Emma Henrikson og Luise Ridderström, báðar á samtals 141 höggi og varð að fara fram bráðabani milli þeirra, til að skera úr um hvor þeirra krækti sér í 2. sætið sem í boði var á US Open – og þar hafði Henrikson betur! Ridderström er 1. varamaður inn á US Open.
Það verður gaman að fylgjast með IK Kim á US Open, en hún virðist vera í banastuði þessa dagana og hungrar í fyrsta risatitil sinn.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
