Hver er kylfingurinn: Francesco Molinari?
Stutta svarið við spurningunni í fyrirsögn greinarinnar er auðvitað: Francesco Molinari er sigurvegari 147. Opna breska!
En hver er annars þessi hægláti og hógværi kylfingur, Francesco Molinari?

Francesco Molinari fæddist 8. nóvember 1982 og er því 35 ára. Árið 2018 er búið að vera honum gott. Hann hefir auk Opna breska sigraði á fyrsta móti sínu á PGA Tour þ.e. Quicken Loans og eins sigraði hann í flaggskipsmóti Evrópumótaraðarinnar 2018 BMW PGA Championship.
Hann hefir sigrað í 9 mótum á atvinnumannsferli sínum 2 á PGA Tour og 6 á Evrópumótaröðrinni. Francesco Molinari er jafnframt fyrsti ítalski kylfingurinn til þess að sigra á Opna breska og reyndar fyrsti ítalski kylfingurinn til þess að sigra á risamóti!!!
Francesco Molinari fæddist í Torínó á Ítaliu og er yngri bróðir Edoardo Molinari. Sem áhugamaður sigraði Francesco m.a. Ítalíumótið þ.e. Mót ítalskra áhugamanna í höggleik tvívegis og varð ítalskur meistari í holukeppni 2004. Árið eftir, 2005 gerðist hann atvinnumaður og hefir því verið í atvinnumennskunni í 13 ár.

Atvinnumennskan
Molinari vann sér inn kortið sitt á Evróputúrnum 2005 eftir að hafa farið í gegnum Q-school. Hnn varð í 86. sæti á stigalistanum fyrsta árið sitt á Túrnum.
Í maí 2006 vann Molinari fyrsta sigur sinn á Evróputúrnum og varð fyrsti Ítalinn frá Massimo Mannelli árið 1980 til þess að sigra á Telecom Italia Open. Þessi sigur varð til þess að hann varð í 38. sæti á stigalistanum. Francesco sigraði ekki á Túrnum á árunum 2007-2009 en á þeim tíma varð hann hins vegar 20 sinnum meðal efstu 10 í mótum þ.á.m. þrívegis í 2. sæti. Hann varð í 60. sæti á stigalistanum 2007, í 24. sæti 2008 og í 14. sæti á Race to Dubai stigalistanum árið 2009. Molinari náði þá í fyrsta sinn að vera meðal efstu 50 á heimslistanum.
Þann 29. nóvember 2009 leiddi Francesco saman með eldri bróður sínum Edoardo, Ítalíu til sigurs í fyrsta sinn í Heimsbikarskeppninni þ.e. Omega Mission Hills World Cup í Kína.

Francesco Molinari með heimsbikarinn
Þann 7. nóvember 2010 vann Francesco WGC-HSBC Champions í Shanghai, Kína. Hann hafði betur gegn Lee Westwood b átti 1 högg á hann og lauk keppni 19 undir pari.
Með þessum sigri fór hann í 14. sæti heimslistans en það var það hæsta sem hann hafði náð. Hann varð líka 11 sinnum meðal efstu 10 þ.á.m. 2 sinnum í 2. sæti og þetta árið varð hann í 5. sæti á stigalista Evróputúrnum.
Í október 2010 tók Francesco Molinari í fyrsta sinn þátt í Ryder bikarnum, sem fram fór á Celtic Manor Resort, ásamt bróður sínum Edoardo. Þeir bræður náðu hálfu stigi gegn þeim Stuart Cink og Matt Kuchar í fjórboltanum en í fjórmenningi töpuðu þeir fyrir Zach Johnson og Hunter Mahan. Francesco tapaði í tvímenningi 4&3 fyrir Tiger Woods á lokadeginum. Engu að síður var Francesco í vinningsliði Evrópu því lið Evrópu sigraði það bandaríska sælla minninga 14½–13½.
Molinari var stöðugur 2011 en án sigra. Hann náði þó að vera 7 sinnum meðal efstu 10 þ.á.m. varð hann í 3. sæti í WGC-Cadillac Championship. Árið 2011 varð hann í 21. sæti á stigalista Evrópumótaraðarinnar.

Francesco Molinari ásamt fjölskyldu sinni eiginkonunni Valentínu og syninum Tommasso eftir sigur á Reale Seguros Open de España
Franceso Molinari sigraði í 3. sinn á Evróputúrnum þann 6. maí 2012 á Reale Seguros Open de España. Hann var 4 höggum á eftir forystumanni mótsins fyrir lokahringinn en var á 7 undir pari, 65 höggum, besta hring mótsins og þegar yfir lauk átti hann 3 högg á þá Alejandro Cañizares, Søren Kjeldsen og Pablo Larrazábal, sem voru í 2. sæti. Í júlí 2012 vikuna fyrir Opna breska, tapaði Molinari í bráðabana á Aberdeen Asset Management Scottish Open. Hann beið lægri hlut fyrir Indverjanum Jeev Milkha Singh þegar á 1. holu bráðabanans.
Francesco vann sér sæti í 2012 Ryder bikars lið Evrópu þar sem hann lék í fjórmenningi með Lee Westwood á föstudeginum og tapaði 3&2 fyrir Jason Dufner og Zach Johnson; hann lék síðan í fjórboltanum með Justin Rose, og tapaði 5&4 fyrir Bubba Watson og Webb Simpson. Á lokadeginum náði hann 1/2 stigi í tvímenningnum á móti Tiger Woods. Þetta stig þýddi að lið Evrópu vann lið Bandaríkjanna 14½ – 13½.
Á 2013 og 2014 keppnistímabilunum náði Francesco Molinari ekki að sigra en var stöðugt meðal efstu 50 á heimslistanum og ávann sér þar með rétt til að spila á PGA Tour án þess að vera meðlimur á mótaröðinni, þar sem hann náði 3 sinnum að vera meðal efstu 10; þ.á.m. varð hann í 6 sæti á 2014 Players Championship. Þessi árangur varð til þess að hann hlaut kortið sitt á PGA Tour fyrir 2014-2015 keppnistímabilið.
Árin 2015 – 2016 var Molinari stöðugt á ferðalagi milli móta Evróputúrsins og PGA Tour. Í september 2016 varð hann fyrsti ítalski kylfingurinn til að sigra Opna ítalska tvívegis með 1 höggs sigur yfir Danny Willett á Opna ítalska 2016. Annar merkilegur árangur Molinari var að hann varð í 2. sæti á Open de España 2015 og 2016 Open de France og í Bandaríkjunum varð hann í 2. sæti á Memorial Tournament 2015. Sama ár fór hann einnig holu í höggi á hinni frægu par-3 16. holu á Waste Management Phoenix Open.

Francesco Molinari vann sinn 5. titil á Evróputúrnum og fyrsta titil í Rolex Series í maí 2018, með sigri á flaggskipsmóti Evrópu s.s. áður er vikið að þ.e. BMW PGA Championship. Hann setti saman gallalausan hring og hafði betur gegn Rory McIlroy, þ.e. átti 2 högg á hann. Með þessum sigri jafnaði Molinari við Costantino Rocca, en báðir höfðu þá unnið jafnmarga sigra á Evróputúrnum og voru þeir ítölsku kylfinga, sem sigrað höfðu oftast á Evróputúrnum. Sama ár vann Francesco s.s. áður er komið fram á Quicken Loans National og var þetta yfirburðasigur því lokahringinn lék Molinari á 62 höggum og átti heil 8 högg á þá sem næstir komu. Þetta var fyrsti PGA Tour sigur Ítala frá árinu 1947.
Og núna í gær á Opna breska vann Molinari með 8 undir pari og var m.a. með Tiger í holli á lokahringnum. Með sigrinum fer Molinari í 6. sæti á heimslistanum, sem er besti árangur hans á heimslistanum á ferlinum.

Francesco Molinari ásamt syni sínum Tommasso á Masters
Einkalíf
Francesco Molinari er stuðningsmaður Inter Milan í ítalska boltanum og studdi West Ham United eftir að ítalski fótboltastjórinn Gianfranco Zola hóf að vinna með East London liðinu 2008. Hann er kvæntur eiginkonu sinni Valentinu (frá árinu 2007) og saman eiga þau gli bambini Tomasso y Emma.
Áhugamannssigrar Francesco Molinari
2002 Italian Amateur Stroke Play Championship, Italian Amateur Foursomes Championship (með Edoardo Molinari)
2004 Italian Amateur Stroke Play Championship, Italian Match Play Championship, Sherry Cup (ESP)
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
