Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 18. 2016 | 08:18

Hver er kylfingurinn: Fabian Gomez?

Fabian Gomez fæddist í Chaco, Argentínu 27. október 1978 og er því 37 ára.

Fabian hefir sigrað þrívegis á Tour de las Americas, og eins 3 sinnum á argentínsku TPG Tour. Hann varð í 2. sæti á Chaco Open árið 2006, á TLA Players Championship árið 2006 og Venezuela Open árið 2007. Hann varð í efsta sæti á stigalista TPG Tour árið 2009.

Gómez vann fyrsta og eina Nationwide Tour sigru sinn árið 2010 en það var Chitimacha Louisiana Open. Hann varð í 12. sæti það ár á peningalistanum og hlaut kortið sitt í fyrsta sinn á PGA Tour árið 2011. Það ár var besti árangur hans 7. sætið á Puerto Rico Open, 15. sætið á St. Jude Classic og 18. sætið á Viking Classic.

Hann vann sér ekki inn nægilega mikið verðlaunafé og árið 2012 var hann aftur kominn á Nationwide Tour. Hann varð í 2. sæti á Chitimacha Louisiana Open, 7. á the South Georgia Classic og í 10. sæti á Winn-Dixie Jacksonville Open. Hann varð í 55. sæti á Nationawide Tour peningalistanum. Seinna varð hann síðan í 10. sæti í PGA Q School og vann sér inn kortið sitt á PGA Tour fyrir keppnistímabilið 2013.

Árið 2013 varð Gómez í 2. sæti á Puerto Rico Open, 16. sæti á RBC Canadian Open og í 21. sæti á AT&T National. Hann varð í 133. sæti á peningalista PGA tour og missti síðan aftur kortið sitt á PGA Tour.

Hann var því aftur kominn á Web.com Tour keppnistímabilið 2014 og þar varð hann í 2. sæti á Stonebrae Classic, í 4. sæti á United Leasing Championship og í 10. sæti á the Albertsons Boise Open. Hann varð í 23. sæti á peningalista Web.com Tour og vann þannig aftur kortið sitt keppnistímabilið 2014-2015 á PGA Tour.

Þann 14. júní 2015 sigraði Gomez á fyrsta PGA Tour móti sínu, þ.e. St. Jude Classic – Sjá frétt Golf 1 um það með því að SMELLA HÉR: 

Keppnistímabilið 2016 keppir Gomez á PGA Tour og er með sigrinum í gær, 17. janúar 2016, á Sony Open búinn að tryggja sér keppnisrétt á PGA Tour næstu 2 árin, en það var hann líka búinn að gera í fyrra en framlengir nú keppnisrétt sinn til 2018!