Hver er kylfingurinn: Dustin Johnson? (Fyrri grein af 2)
Hvað eiga Dustin Johnson og Hunter Mahan sameiginlegt? Jú, þeir heita báðir Hunter!!!
Dustin Hunter Johnson, oft líka bara nefndur DJ fæddist í Colombía, Suður-Karólínu 22. júní 1984 og er því 28 ára. Dustin spilaði í bandaríska háskólagolfinu með golfliði Coastal Carolina University. Sem áhugamaður sigraði hann á Monroe Invitational og Northeast Amateur árið 2007 og spilaði í sigurliðum Walker Cup og Palmer Cup árið 2007.

Dustin Johnson er hávaxinn 1,93 og myndarlegur. Hann er yfirleitt ofarlega í kosningum á kynþokkafyllstu karlkylfingum heims, sem ýmsir miðlar standa fyrir á stundum.
Atvinnumennskan
Dustin gerðist atvinnumaður síðla árs 2007 og var þrjú ár í röð (2009-2011) meðal mestu sleggja á PGA Tour, þ.e. meðal högglengstu kylfinga nánar tiltekið með 3. mestu högglengdina. Dustin er jafnframt meðal hávaxnari kylfinga 1,93 metra á hæð Hann hlaut kortið sitt á PGA Tour 2008 með því að verða jafn öðrum í 14. sæti í Q-school PGA í desember 2007.
Þegar nálgaðist lok nýliðaárs hans í október 2008 sigraði Johnson á fyrsta PGA Tour móti sínu þ.e. Turning Stone Resort Championship í New York. Fjórum mánuðum síðar vann hann 2. mót sitt AT&T Pebble Beach National Pro-Am, sem var stytt í 54 holur vegna mikilla vinda og rigningaveðurs. Johnson átti 4 högg á Mike Weir og 5 högg á þann sem leiddi þegar mótið var hálfnað Retief Goosen. DJ var í 15. sæti á peningalista PGA í lok 2009.
Keppnistímabilið 2010
Í febrúar 2010 fékk Johnson fugl á lokaholuna og sigraði m.a. fyrrum nr. 1 á heimslistanum David Duval og tvöfaldan sigurvegara á PGA Tour J. B. Holmes og tókst að verja titil sinn á AT&T Pebble Beach National Pro-Am title.
Hann var á 71-70-66 fyrstu þrjá dagana og átti 3 högga forskot á Graeme McDowell fyrir lokahirnginn á Opna bandaríska 2010. En á lokahringnum á sunnudseginum átti Johnson í vandræðum snemma og jafnaði sig aldrei. Hann átti vonbrigðahring ferils síns upp á 82 högg og lauk keppni T-8 (en G-Mac vann mótið s.s. allir muna).
Á lokahringnum á PGA Championship sama ár, þ.e. 2010 var DJ með 1 höggs forystu þegar hann kom að lokaholunni. Hann virtist hafa náð skolla á holuna sem myndi hafa komið honum í 1. sæti ásamt Bubba Watson og Martin Kaymer. En hann hlaut eftirminnilegt 2 högga víti fyrir að láta kylfu sína snerta sandglompu, (sem reyndar var umdeilt hvor væri sandglompa) en það þýddi lítið að deila við dómarann og Johnson varð í 5. sæti. Kaymer vann síðan umspilið við Watson.
DJ lauk þessu erfiða ári golflega séð fyrir hann með því að sigra á 3. móti FedEx Cup umspilsins, the BMW Championship í Cog Hill í september. Það var 4. sigur Johnson á PGA Tour og fyrsti sigur hans í FedEx Cup umspilinu. Hann lauk keppnistímabilinu 2010, sem var honum svo erfitt, engu að síður í 4. sæti á peningalista PGA Tour.
Heimild: Wikipedia
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

