Hver er kylfingurinn: Danny Willett?
Enski kylfingurinn Danny Willett sigraði nú um helgina á Omega Dubai Desert Classic og var þessi sigur hans 4. á Evrópumótaröðinni.
Hver er kylfingurinn, kunna ýmsir að spyrja sig?
Daniel John (Danny) Willett fæddist 3. október 1987 í Sheffield í Suður-Jórvíkurskíri og er því 28 ára. Hann er sonur stærðfræðikennarans Elisabet Willett. Sem áhugamaður sigraði Danny English Amateur Championship árið 2007 og keppti í Walker Cup á Royal County Down sama ár. Í mars 2008 komst hann í efsta sæti á heimslista áhugamanna.
Willett spilaði líka 2 keppnistímabili í Jacksonville State University í Bandaríkjunum. Meðan á dvöl hans í JSU stóð var hann valinn nýliði ársins í Ohio Valley Conferenc árið 2006 og eins sigraði hann í einstaklingskeppni árið 2007 í OVC Championship.Hann var valinn first-team All-OVC performer og komst í lið OVC’s All-Tournament Team á báðum keppnistímabilum.
Atvinnumennskan
Willett gerðist atvinnumaður árið 2008, og vann sér inn kortið sitt á Evrópumótaröðinni þegar árið 2009. Honum gekk vel fyrsta árið sitt á Evróputúrnum varð í 58. sæti í fyrsta Race to Dubai með 8 topp-10 árangra. Willett var meðal efstu manna 2010 á BMW PGA Championship; hann var í forystu 1. daginn áður en hann missti taktinn og kláraði í 5. sæti, sem hann þó altént vann sér inn 190,800 evrur. Með þessum árangri fór Willett í fyrsta sinn á topp-100 á heimslistanum. Hann kláraði 2010 keppnistímabilið í 23. sæti á peningalistanum.
Willett vann sinn fyrsta sigur á Evróputúrnum í júní 2012 á BMW International Open í Köln. Hann vann Marcus Fraser á 4. holu í bráðabana. Willett spilaði frábært chip högg úr röffinu en Fraser missti stutt 1 1/2 metra pútt fyrir skolla, en Willett þurfti rétt að snerta boltann til þess að hann dytti.
Willett varð í 3. sæti á 2015 WGC-Cadillac Match Play Championship og vann sér þar með inn sérstakan þáttökurétt á PGA Tour. Eftir 6 holur eftir 36 tíma á Opna breska.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
