Hver er kylfingurinn: Danny Lee? (1/4)
Danny Lee frá Nýja-Sjálandi sigraði í gær, 4. júlí 2015 á Greenbriar Classic mótinu.
Danny Jin-Myung Lee fæddist 24. júlí 1990 og er því 24 ára. Hann er frá Rotorua, á Nýja-Sjálandi. New Zealand. Lee fæddist í Suður-Kóreu og fluttist til Nýja-Sjálands 8 ára. Nafn hans á Hangul (kóreönsku er skrifað: 이진명.) Hann fékk nýsjálenskan ríkisborgararétt 2. september 2008 á Rotorua, þar sem hann var í Rotorua Boys’ High School.
Áhugamannsferill
Lee varð sá yngsti til þess að sigra á U.S. Amateur Championship í ágúst 2008, þá 18 ára og 1 mánaða og 6 mánuðum yngri en þegar Tiger Woods vann 1994. Aldursmet hans var bætt ári síðar af hinum 17 ára An Byeong-hun. Lee varð nr. 1 á áhugamannaheimslistanum þann 20. ágúst 2008 og var nr. 1 þar til hann gerðist atvinnumaður 1. apríl 2009. Hann fékk Mark H. McCormack viðurkenninguna 27. ágúst 2008.
Í október var hann í lið Nýja-Sjálands í Eisenhower Trophy í Adelaide, Ástralíu. Hann var á 11 yfir pari, 84 höggum á lokahringnum og varð T-37 í einstaklingskeppninni. Lið Nýja-Sjálands var hins vegar T-11.
Í febrúar 2009, vann Lee Johnnie Walker Classi mótið í Perth, Ástralíu, en það er mót sem er samstarfsverkenfi Evróputúrsins, Asíutúrsins og Ástralasíutúrsins. Hann var sá yngsti til þess að sigra á Evrópumótaröðinni og sló þar með met Dale Hayes og var 2. áhugamaðurinn til að sigra á eftir Pablo Martin. Með sigrinum komst hann í 159. sætið á heimslistananum.
Lee tók í fyrsta skipti þátt í risamóti 2009 en það var Masters mótið þar sem fyrri hringur hans upp á 2 yfir pari, 74 högg kom honum í þá stöðun að komast hugsanlega gegnum niðurskurð. Á seinni hringnum fékk hann örn á par-5 8. holuna og spilaði fyrri 9 á Augusta á 34 en hræðilegt sex-pútt og fimmfaldur skolli á 10. kom honum í 5 yfir par og þar með náði hann ekki niðurskurði og lauk keppni 11 yfir pari.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
