Hver er kylfingurinn: Chesson Hadley?
Chesson Tyler Hadley vann í gær sinn fyrsta sigur á PGA Tour, þegar hann sigraði á Puerto Rico Open.
Chesson Hadley fæddist 5. júlí 1987 í Raleigh, Norður-Karólínu og er því 26 ára. Hadley gerðist atvinnumaður í golfi árið 2010 en það ár kvæntist hann líka eiginkonu sinni, Amöndu en saman eiga þau soninn Hughes.
Hadley spilaði golf með golfliði Georgia Tech þar sem hann var þrívegis All-American og vann síðan 2 mót árið 2012, þ.á.m. Atlantic Coast Conference championship. Hadley var í Palmer Cup liðinu árið 2008 Palmer Cup team.
Fyrst eftir að Hadley gerðist atvinnumaður 2010 spilaði hann á Web.com Tour árið 2013 og vann fyrsta mótið sitt á þeirri mótaröð í júní á s.l. ári þ.e. Rex Hospital Open. Hadley bætti síðan 2. sigri sínum við á Web.com þegar hann vann Web.com Tour Championship 29. september 2013. Hann varð í 3. sæti á peningalista Web.com Tour og vann sér þannig inn kortið sitt á PGA Tour.
Hér eru ýmsir fróðleiksmolar um Hadley:
Hadley byrjaði að spila golf 6 ára (fyrir 20 árum) og uppáhaldsminning hans er að spila golf með pabba með fyrsta settinu sínu.
Hadley spilar golf rétthentur, en er örvhentur í flestöllu öðru sem hann gerir.
Hann hjálpar til í kirkjunni sinni og hefir einnig hjálpað til í fátækraeldhúsum, sem gefa fátækum mat í Bandaríkjunum.
Allt frá því hann útskrifaðist úr háskóla hefir hann verið þjónn í ítalska veitingastaðnum Casa Carbone í Raleigh, Norður-Karólínu.
Hadley rakar sig ekki meðan hann keppir í mótum.
Honum finnst gaman að lesa drudgereport.com
Twitterfangið hans er: @chadleyprogolf
Það sem ekki allir vita um hann er að Hadley myndi frekar vilja vaska upp allan daginn en að þvo þvott!
Fram til þess hefir hápunktur ferils hans verið sigur í The Rex Hospital Open á heimavelli í Raleigh (ætli það hafi ekki breyst í gær við að sigra í Puerto Rico Open).
Með sigrinum á Puerto Rico Open fær Hadley $ 630.000 í verðlaunafé, þ.e. u.þ.b. 70 milljónir íslenskra króna. Hadley fær auk þess 2 ára keppnisrétt á PGA Tour og jafnframt boð um að spila í Players mótinu.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
