Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2017 | 13:00

Hver er kylfingurinn: Brian Harman?

Bandaríski kylfingurinn Brian Harman sigraði í gær, 7. maí 2017,  í 2. sinn á PGA Tour – í þetta sinn á Wells Fargo Championship. Harman er ekki meðal þekktustu kylfinga PGA Tour og því ekki að furða að sumir spyrji: Hver er kylfingurinn?

Sjá má eldri kynningu Golf 1 á Harman, frá árinu 2012, þegar Harman komst fyrst á PGA Tour, með því að SMELLA HÉR: en hér á eftir fer nýrri útgáfa:

Brian Harman

Brian Harman

Brian Harman fæddist 19. janúar 1987 og er því 30 ára.

Í háskóla var Harman þrefaldur 2nd Team All-American með golfliði University of Georgia. Hann sigraði  NCAA Preview árið 2005 og Isleworth Invitational árið 2006. Harman var einnig  frábær námsmaður og fékk þrívegis í háskóla viðurkenningu fyrir að vera með hæstu meðaleinkun.

Harman átti frábæran áhugamannaferil. Þannig sigraði hann t.d. 2003  í  U.S. Junior Amateur. Hann sigraði í Players Amateur árið 2005 og the Porter Cup 2007, þar sem sigurskor hans var mótsmet þ.e. 22-undir-pari 258 högg.

Harman lék einnig í sigurliðum Bandaríkjanna í Walker Cup 2005 og 2009 og í Palmer Cup 2007.

Atvinnumannsferill

Harman gerðist atvinnumaður í golfi árið 2009.
Árið 2010 spilaði Harman aðallega  EGolf Professional Tour og var með topp-10 árangra í 11 af þeim 14 mótum sem hann spilaði í.  Fyrsti sigurinn sem atvinnumaður kom á Manor Classic þar sem hann vann með 3 högga mun á næsta mann. Harman spilaði líka í 3 mótum í 2. deildinni í Bandaríkjunum,Nationwide Tour árið 2010. Besti árangur hans var á Stadion Athens Classic í UGA þar sem hann varð T-18 á gamla háskólavellinum sínum.

Harman er þekktur fyrir uppákomu í Players Championship 2012. Hann var fyrsti varamaður þegar D.A. Points dró sig úr mótinu aðeins nokkrum mínútum fyrir rástíma sinn. Rásfélagar hans Carl Pettersson og Robert Garrigus voru þegar búnir að slá og eftir að hafa ráðfært sig við PGA, var Harmann leyft að slá teighöggið einn fyrsta hringinn. Hann fékk síðan sem ráshópsfélaga þá Ryan Moore og Bud Cauley á 2. hring eftir að Paul Casey dró sig úr mótinu. Harman komst í gegnum niðurskurð og varð T51 í mótinu.

Harman komst síðar í gegnum úrtökumót og á fyrsta risamótið sem var Opna bandaríska 2012. Besti árangur Harman í risamótum er

Fyrsti sigur Harman á PGA Tour kom árið 2014 á John Deere Classic. Árið 2015 var Harman í forystu fyrir lokahring Travelers Championship, en komst síðan ekki í bráðabana um efsta sætið, en Bubba Watson stóð uppi sem sigurvegari. Bubba átti 1 högg á Harman og Harman varð í 3. sæti.

Þann 30. ágúst 2015, á The Barclays í Plainfield Country Club í Edison, New Jersey varð Harman 3. kylfingurinn í sögu PGA Tour til þess að fá 2 ása á sama hring í móti.

Og í gær þann 7. maí  2017 sigraðiHarman á Wells Fargo Championship sem fram fór í  Eagle Point golfklúbbnum í Wilmington, Norður-Karólín, en þetta var 2. sigur hans á  PGA Tour. Harman setti m.a. niður 28 feta (7 metra) púttá  18. holu og átti 1 högg á nr. 1 á Rolex-heimslistaum hole to win by one stroke over Dustin Johnson and Pat Perez, who finished at 9-under-par.

Persónuhagir

Loks mætti lítillega geta persónulegra haga Harman, en hann býr á Sea Island í Georgíu með eiginkonu sinni, Kelly Van Slyke og dóttur Cooper Marie.