Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2012 | 11:30

Hver er kylfingurinn: Bernd Wiesberger?

Austurríkismaðurinn Bernd Wiesberger sigraði fyrr í dag á Ballantine´s Championship í Blackstone golfklúbbnum í Icheon, Seúl, Suður-Kóreu, en mótið er hluti bæði af Evrópumótaröðinni og Asíutúrnum.  En hver er þessi ungi Austurríkismaður?

Bernd Klaus Wiesberger fæddist í Vínarborg í Austurríki, 8. október 1985 og er því 26 ára. Í dag býr hann í Oberwart, í Austurríki. Það var pabbi hans sem kenndi Bernd golf. Sem áhugamaður vann Bernd Wiesberger mörg mót var m.a. austurískur meistari í höggleik á árunum 2004-2007 og austurrískur meistari í holukeppni 2004.  Eins var hann unglingameistari 2004 og 2005. Hann var fulltrúi Austurríkis í Eisenhower Trophy, 2004 og 2006 og síðargreinda árið gerðist hann atvinnumaður í golfi,  tvítugur.

Fyrst um sinn spilaði Wiesberger á Áskorendamótaröðinni þ.e. 2007 og 2008. Hann hlaut kortið sitt á Evrópumótaröðina í gegnum Q-school árið 2009, en honum tókst ekki að halda því á nýliðaári sínu og sneri því aftur á Áskorendamótaröðina.

Árið 2010 vann hann 2 mót á Áskorendamótaröðinni: Allianz Golf Open de Lyon og Allianz Golf Open du Grand Toulouse, en við það varð hann 5. á stigalista Áskorendamótaraðarinnar og hlaut aftur kortið sitt á Evrópumótaröðina fyrir 2011 keppnistímabilið.  Fyrra mótið vann hann með aðstoð kaddýs Shane, sem hann fékk að láni hjá vini sínum, sem einnig er heldur betur að slá í gegn á Evrópumótaröðinni í ár, Branden Grace frá Suður-Afríku.

Heima í Austurríki er Bernd Wiesberger í Fontana golfklúbbnum, sem er nærri Vín.

Á  árunum 2009, 2010 og 2011 var Wiesberger valinn íþróttamaður ársins í Burgenland í Austurríki og festi sig í sessi sem einn af bestu kylfingum Austurríkis, stöðu sem Markus Brier hafði áður verið einvaldur yfir (Brier er líka í Fontana golfklúbbnum í Vín).

Í fyrra varð Wiesberger 4 sinnum meðal 10 efstu  á Evrópumótaröðinni, þ.á.m. tvívegis í 2. sæti. Hann varð í 64. sæti á stigalista Evrópumótaraðarinnar (Order of Merit) og fékk því kortið sitt aftur fyrir 2012 keppnistímabilið.

Meðal helstu áhugamála Bernd Wiesberger eru internetið,  íþróttir almennt og að horfa á kvikmyndir. Eins finnst honum eins og fjölmörgum Austurríkismönnum fátt skemmtilegra en að vera á skíðum, en ást hans á skíðaíþróttinni kostaði hann næstum ferilinn í golfinu 2003 þegar hann viðbeinsbrotnaði í skíðaslysi en sem betur fer greru öll bein.

Komast má á heimasíðu Bernd Klaus Wiesberger til þess að fræðast nánar um hann HÉR: