Andrew „Beef“ Johnston Hver er kylfingurinn: Andrew Johnston?
Enski kylfingurinn, Andrew Johnston, sigraði í dag á
Andrew Johnston fæddist í London, Englandi, 18. febrúar 1989 og er því 27 ára.
Hann var mjög efnilegur áhugamaður og var m.a. í strákaliði Breta&Íra á Jacques Léglise Trophy.
Johnston gerðist atvinnumaður 2009 og sigraði fyrsta mót sitt sem atvinnumaður sama ár á Jamega Tour, sem m.a. Þórður Rafn „okkar“ Gissurarson hefir keppt á.
Keppnistímabilið 2010 spilaði Johnston á Jamega Tour, PGA EuroPro Tour og var farin að fá boð í mót á Áskorendamótaröðina (ens. Challenge Tour).
En „break-through-ið“ kom á keppnistímabilinu 2011. Hann spilaði á fyrsta mótinu sínu á Evróputúrnum í Alfred Dunhill Championship í Suður-Afríku og vegna góðs árangurs þar fékk hann að taka þátt í fyrsta risamótinu sínu Opna breska. Johnston komst þó ekki í gegnum niðurskurð á Opna breska, en allt þetta fór í reynslubankann. Hann átti einnig fleiri aðra góða árangra og fékk í kjölfarið fleiri boð á mót Áskorendamótaraðarinnar og þar fór hann að sýna árangur þ.e. varð m.a. í 2. sæti á M2M Russian Challenge Cup. Sá árangur varð til þess að hann fékk að taka þátt í Grand Final þar sem hann varð T-3 og skaust upp í 15. sæsti á stigatöflunni, sem tryggði honum keppnisrétt á Evróputúrnum 2012.
Johnston hefir síðan þá rokkað milli Evróputúrsins, þar sem hann hefir aðallega fengið að keppa í boði styrktaraðila og Áskorendamótaraðarinnar, þar sem hann náði að festa sig í sessi; hefir m.a. sigrað tvívegis á þeirri mótaröð þ.e. Scottish Hydro Challenge, þ. 29. júní 2014 og Le Vaudreuil Golf Challenge, þ. 27. júlí 2014.
Í dag sigraði Johnston síðan í fyrsta sinn í móti á Evrópumótaröðinni og það ekkert smá móti sjálfu Opna spænska og það á flaggskipsvelli Evrópu nr. 1 sjálfum Valderrama, sem spilaðist svo erfiðlega að besta skorið var skor Johnston upp á samfellt 1 yfir pari (67 74 74 70)! Enginn keppanda með heildarskor undir pari!!!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
