
Hvað er SNAG golf?
Á þriðjudaginn s.l. 5. mars 2013 stóð GSÍ fyrir kynningu á SNAG í Laugardalshöllinni. Magnús Birgisson og Tony Howarth, báðir golfkennarar í yfir 20 ár, kynntu nýju SNAG kennsluaðferðina við golf. Hún hentar einkum þeim sem eru að byrja í golfi og geta krakkar allt niður í 5-6 ára aldurinn nýtt sér SNAG og stígið þannig sín fyrstu skref í golfíþróttinni. En SNAG er ekki bara fyrir þau yngstu; þetta er kennsluaðferð sem allir hafa gaman af.
SNAG golfvörurnar fást á nýju vefverslunni HISSA.IS og þar má líka panta kennslu hjá Magnúsi í SNAG. Á hissa.is eru eftirfarandi upplýsingar um SNAG:
Hvað er SNAG golf?
SNAG (Starting New at Golf) er frábært kennslukerfi sem ætlað er fólki á öllum aldri og hvaða getustigi sem er. Kerfið hentar báðum kynjum, börnum, fullorðnum og öldruðum. SNAG kerfið hentar einnig vel til að kenna fötluðum einstaklingum.
SNAG má setja upp hvort heldur er úti eða inni. Kennslan er þess vegna ekki bundin golfvelli eða æfingasvæði því nota má SNAG þar sem aðstæður leyfa hverju sinni.
SNAG snýst um að hafa gaman á meðan verið er að læra grundvallaratriðin í golfi. Hugtökin sem notuð eru í SNAG skapa skýrar myndir í huga nemandans og stuðla þannig að auknum skilningi hans á golfleiknum.
Um 8.000 skólar víða um heim hafa náð góðum árangri í að kynna golfíþróttina fyrir nemendum sínum.
SNAG kerfið
SNAG hefur verið í stöðugri þróun síðustu 10 ár og er vel þekkt í golfheiminum sem öðruvísi og skemmtileg nálgun á kennslu undirstöðuatriða í golfi.
SNAG inniheldur alla þætti hefðbundins golfs en í breyttu formi. Notaður er sérstaklega hannaður golfbúnaður til að einfalda lærdómsferlið. Hann má nota á óhefðbundnum stöðum, eins og fótboltavöllum, í íþróttastöðvum, úti á túni eða niðri á strönd. Lykillinn að SNAG er einföld fyrirmæli sem leiða til árangursríkra breytinga á golfleiknum. Búnaðinum fylgir handbók með ítarlegum leiðbeiningum fyrir alla þætti leiksins: þann líkamlega, andlega og tilfinningalega.
Kerfið kennir grundvallaratriðin í mismunandi strokum og sveiflum fyrir púttin, stutta spilið og langa spilið til að þróa spilagetu á fljótlegan og árangursríkan hátt. Hver kennslustund samanstendur af 60 mínútna þjálfun sem deilast niður í sex mínútna stöðvar og endað er á 30 mínútna leik.
SNAG má kenna og spila svo til hvar sem er. Allir geta tekið þátt og náð jákvæðum og góðum árangri. Þessi skjóti árangur verður þess valdandi að áhuginn vex og nýir nemendur vilja halda áfram.
SNAG þjálfunarpakkann má útbúa fyrir allt að 16 nemendur í einu sem læra og spila saman í skemmtilegu og árangursríku umhverfi.
Hægt er að panta námskeið og liðakeppni fyrir karla, konur og börn í SNAG á hissa.is
Jack Nicklaus og SNAG®
Bandaríski atvinnukylfingurinn Jack Nicklaus mun á árinu 2013 standa fyrir viðamiklu grasrótarstarfi í samstarfi við SNAG® Golf og NRPA (National Recreation & Parks Association).
Ætlunin er að nýta almenningsgarða og önnur opin svæði til að kynna byrjendagolf fyrir milljónum barna og fullorðinna og nota til þess SNAG® kennsluefni og búnað. Með því að nýta almenningssvæði má gera golf og golfkennslu aðgengilegri og veita nemendum örugga, ódýra og þægilega leið inn á golfvöllinn.
Jack Nicklaus deildirnar skiptast eftir aldri í 5-6 ára, 7-8 ára, 9-10 ára og 11-12 ára hópa auk fullorðinsdeilda. Hver deild hefur ramma og námsefni sem hæfir viðkomandi aldri. Deildirnar bjóða gæðakennslu og þjálfun fyrir byrjendur til að komast inn í leikinn og gera hann skemmtilegan. Þegar nemendur eru tilbúnir til að færa sig yfir í hefðbundinn búnað á golfvellinum byggja þeir á góðum grunni og stuðla að því að gera golfíþróttina samkeppnishæfari við aðrar íþróttir.
- janúar. 21. 2021 | 18:00 Tiger ekkert of hrifinn af nýrri heimildarmynd um sig
- janúar. 21. 2021 | 15:49 Afmæliskylfingur dagsins: Davíð og Jónas Guðmundssynir og Rósa Ólafsdóttir – 21. janúar 2021
- janúar. 21. 2021 | 10:00 Orð Justin Thomas eftir að Ralph Lauren rifti styrktarsamningi við hann
- janúar. 20. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Silja Rún Gunnlaugsdóttir – 20. janúar 2021
- janúar. 20. 2021 | 10:00 Paulina Gretzky talar um samband sitt við DJ
- janúar. 20. 2021 | 09:30 Thorbjørn Olesen með Covid-19
- janúar. 20. 2021 | 07:30 Spurning hvort Olympíuleikarnir fari fram 2021?
- janúar. 20. 2021 | 07:00 Haraldur Júlíusson látinn
- janúar. 20. 2021 | 06:00 GM: 40 ár frá stofnun GKJ
- janúar. 19. 2021 | 19:00 GA: Veigar hlaut háttvísibikarinn 2020
- janúar. 19. 2021 | 18:00 Paige Spiranac segir Tiger ekkert skrímsli þrátt fyrir framhjáhald
- janúar. 19. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Tommy Fleetwood – 19. janúar 2021
- janúar. 19. 2021 | 10:00 PGA: Jon Rahm dregur sig úr móti vikunnar
- janúar. 18. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðný María Guðmundsdóttir – 18. janúar 2021
- janúar. 18. 2021 | 12:00 Hver er kylfingurinn: Kevin Na?