Íslandsmeistararnir í höggleik 2014. Mynd: Golf 1 Hvað er heitt og hvað afleitt?
Nú í sumar hefir verið í gangi greinarflokkur hér á Golf 1 sem ber heitið „Hvað er heitt og hvað afleitt?“, sem er í raun bein þýðing og stæling á sambærilegum greinaflokki hjá CBSsports.com, sem heitir þar „What´s hot and what not … on the PGA tour.“ Greinarflokkurinn verður í gangi allt þar til síðustu leikir á Íslandsbankaröðinni hafa verið leiknir fyrstu vikuna í september og hefur síðan aftur göngu sína á næsta sumri 2015, þegar mótaraðir okkar bestu hefja göngu sína, enda greinarröðinni ótrúlega vel tekið.
Á CBS er alltaf getið um 5 atriði (kylfinga, atburði, eitthvað innan golfheimsins), sem þykja hafa skarað fram úr í vikunni áður en greinin birtist og er þ.a.l. heitt og að sama skapi eitthvað sem var afleitt í vikunni þar á undan.
Í hinum íslenska greinaflokki er ekkert loforð gefið um fjölda þess sem er heitt eða afleitt að öðru leyti en því að alltaf er a.m.k. nefnt 1 atriði af hvoru og í mesta lagi 5 eins og á CBS. Haldið er sömu röð og hjá CBS – það sem er nr. 1 er heitast og síðan volgnar niður listann. Alveg eins með það sem er afleitt – það sem er frámunalega afleitt er í 1. sæti og síðan skánar eftir því sem fer niður listann.
Heitt/afleitt grein birtist alltaft á mánudögum nú í sumar.
Hér fer níundi alíslenski „Hot“ listinn fyrir vikuhlutann 12. júlí.-28. júlí (Listinn gildir til mánudagsins 4. ágúst):
1. sæti Langheitust þessa vikuna eru nýkrýndir Íslandsmeistarar í höggleik á 5. móti Eimskipsamótaraðarinnar Birgir Leifur Hafþórsson og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Margfaldir Íslandsmeistarar og glæsileg bæði tvö!
2. sæti Þátttakendurnir á European Young Masters: Fannar Ingi Steingrímsson, GHG; Henning Darri Þórðarson, GK; , Saga Traustadóttir, GR og Ólöf María Einarsdóttir, GHD.
3. sæti Öll umgjörð, skipulag og framkvæmd Íslandsmótsins í höggleik. Þetta var frábært Íslandsmót í alla staði og vel lukkað hjá heitum afmæliskgolfklúbbi Garðarbæjar og Kópavogs og klúbbnum til mikils sóma!
4. sæti Ragnar Már Garðarsson, GKG – Heitt að fara holu í höggi í fyrsta sinn á Íslandsmóti!
5. sæti Heitir þeir sem fóru holu í höggi í s.l. viku m.a. Birkir Orri Viðarsson, 13 ára strákur úr GS og Sigurður Þorkelsson úr GS.
Það sem er afleitt er eftirfarandi: (Listinn tekur til vikuhlutans 22.-28. júlí)
1.-4. Allt hernaðarbrölt úti í heimi. ( – Reyndar er þetta algilt og ofangreind tímamörk taka ekki til þess heldur er allt hernaðarbrölt afleitt alltaf, en e.t.v. sérstaklega m.t.t. síðustu viku þegar sést hvernig púðurtunnan í Ísrael getur sprungið við morð á 3 einstaklingum) Það hefir haft í för með sér heilt stríð og yfir 1000 fallnir í stríði Ísrael við Hamas og margfalt fleiri særðir. Meðan við leikum okkur í golfi hér á Íslandi er fjöldi fólks að deyja og harmleikurinn ósegjanlegur. Litlu krakkarnir á Gaza spyrja hvenær þau geti farið að leika sér? …. og eru síðan skotnir ef þau leika sér á röngum stöðum. Þetta er svo hræðilegt að afleitt er allt of veikt orð, en afleitt í þessu sambandi er að allir geti ekki leikið sér og spilað golf eins og við hér á Íslandi.
5. Að forsetinn hafi ekki komist í gegnum niðurskurð á Íslandsmótinu í höggleik. Afleitt!!! Þetta sýnir bara hið gamalkveðna á við í dag sem áður að æfingin skapar meistarann.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
