Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 14. 2014 | 20:00

Hvað er heitt og hvað afleitt?

Nú í sumar hefir verið í gangi  greinarflokkur hér á  Golf 1 sem ber heitið „Hvað er heitt og hvað afleitt?“, sem er í raun bein þýðing og stæling á sambærilegum greinaflokki hjá CBSsports.com, sem heitir þar „What´s hot and what not … on the PGA tour.“  Greinarflokkurinn verður í gangi allt þar til síðustu leikir á Íslandsbankaröðinni hafa verið leiknir fyrstu vikuna í september og hefir síðan aftur göngu sína á næsta sumri 2015, þegar mótaraðir okkar bestu hefja göngu sína enda greinarröðinni ótrúlega vel tekið.

Á CBS er alltaf getið um 5 atriði (kylfinga, atburði, eitthvað innan golfheimsins), sem þykja hafa skarað fram úr í vikunni áður en greinin birtist og er þ.a.l. heitt og að sama skapi eitthvað sem var afleitt í vikunni þar á undan.

Í hinum íslenska greinaflokki er ekkert loforð gefið um fjölda þess sem er heitt eða afleitt að öðru leyti en því að alltaf er a.m.k. nefnt 1 atriði af hvoru og í mesta lagi 5 eins og á CBS.   Haldið er sömu röð og hjá CBS – það sem er nr. 1 er heitast og síðan volgnar niður listann.  Alveg eins með það sem er afleitt – það sem er frámunalega afleitt er í 1. sæti og síðan skánar eftir því sem fer niður listann.

Heitt/afleitt grein  birtist alltaft á mánudögum nú í sumar.

Hér fer sjöundii alíslenski „Hot“ listinn fyrir vikuhlutann 8. júlí.-14. júlí (Listinn gildir til mánudagsins 21. júlí):

1.  Heitasti kylfingurinn þessa vikuna er Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, en hún stóð sig langbest af stelpunum okkar á EM kvennalandsliða, sem fram fór í Ljubliana, Slóveniu !!!

2. Ragnhildur Sigurðardóttir.  Hún varð klúbbmeistari kvenna í stærsta golfklúbbi á Íslandi, GR,  í 18. skipti!!! Engin spurning að Ragga Sig er einn besti kvenkylfingur Íslands, sjóðandi heit og þar að auki einn albesti golfkennarinn okkar!

3. Stákarnir okkar á EM piltalandsliða. Frábærir allir sem einn. Að öðrum ólöstuðum mætti e.t.v. taka Henning Darra Þórðarson í GK, fram en hann tryggði piltunum okkar 11. sætið á EM, með fugli á 18. í síðasta holukeppnisleiknum  – en 11. sætið á EM var besti árangur af EM-keppnunum 3 sem Íslendingar tóku þátt í, í s.l. viku.

4. Þórður Rafn Gissurarson, fyrir að komast í gegnum niðurskurð og ná 35. sætinu í Praforst Pro Golf Tour Fulda mótinu, í Fulda í Þýskalandi.  Það er heitt!

5. Klúbbmeistarar og meistaramótsþátttakendur um allt land. Heitir!!!

 Það sem er afleitt er eftirfarandi: (Listinn gildir til mánudagsins 21. júlí):

1, Veðrið – hefir, það sem af er sumars, í einu orði verið: Afleitt!!!  Sérstaklega gerði það fjölmörgum keppendum seinnipart s.l. viku skráveifu í meistaramótunum hér á Höfuðborgarsvæðinu.  Afleitt!!!

2. Allt hernaðarbrölt úti í heimi.( – reyndar er þetta algilt og ofangreind tímamörk taka ekki til þess heldur er allt hernaðarbrölt afleitt alltaf, en e.t.v. sérstaklega í síðustu viku m.t.t. síðustu viku þegar sést hvernig púðurtunnan í Ísrael getur sprungið við morð á 3 einstaklingum) Það hefir haft í för með sér heilt stríð og  172 fallnir í stríði Ísrael við Hamas bara núna í s.l. viku.  Af hverju getur fólk ekki bara slakað á? Í stað þess að drepa og slá hvert annað;  slá í hvíta litla golfkúlu á grænum engjum, í faðmi fjölskyldu og vina… eins og við hér á Íslandi.  Það er hreint og beint afleitt að allir skuli ekki hafa það jafngott og við hér á litlu golfeyjunni okkar …. jafnvel þó veðrið sé afleitt hér stundum.