Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 15. 2012 | 18:30

Holly Sonders – Sú heitasta í golfinu í dag?

Rakst á skemmtilega grein á Grouchy Golf Blog þar sem greinarhöfundur er að velta fyrir sér hver sé sú heitasta í golfinu í dag og bar fyrrisögnina Holly Sonders – sú heitasta (í golfinu) í dag?. Skv. síðustu heimildum hélt ég að sú heitasta væri Sophie Horn.

Holly Sonders.

Eins þótti afmæliskylfingur gærdagsins hér á Golf 1, Blair O´Neal ekki amaleg, en fyrir 2 árum hlaut hún milljónir atkvæða aðdáenda á netinu í vali sem InGameNow.com og Sports Illustrated stóðu  fyrir á „heitasta íþróttamanni heims“ –  “ens.: World’s Hottest Athlete”. Blair er ekki bara góður kylfingur, hún hefir getið sér góðs orðs sem módel og er á samningi hjá Ford Models og Sports Unlimited Talents, auk þess sem hún gerði samning við Donald Trump um að koma fram í golfþætti hans, „The Fabulous World of Golf.“

Fjölda annarra mætti geta t.a.m. hinar áströlsku Önnu Rawson eða Kristie Smith, hina rússnesku Maríu Verchenovu, ítalska kylfinginn Sophie Sandolo eða spænska kylfinga á borð við Azahara MuñozBeatriz Recari eða Elisu Serramia.

Holly Sonders.

Skv. Grouchy Golf  Blog er það hins vegar Holly Sonders sem er sú heitasta í dag.

Holly Sonders í Quail Hollow á dögunum.

Hér fer greinin í lauslegri þýðingu:

Greinin byrjar á spurningunni Hver er sú heitasta? Síðan svarar höfundur sjálfum sér: „Ég veðja að 99.9% þeirra sem geta á annað borð komið með svar muni segja Natalie Gulbis.

Ég kem hér með svar sem ég er viss um að 99,9% gæjanna hafa aldrei heyrt um: Holly Sonders.

Eftir að hafa horft á Golf Channel s.l. ár hef ég loks komist að þeirri niðurstöðu að sú heitasta í golfinu sé Holly Sonders.

Holly í Bay Hill.

Hún var upphaflega í „Morning Drive“ en hefir komið fram sem fréttakona í öðrum þáttum á borð við  „Golf Channel Academy“ og „School of Golf“.  […]

Í fyrstu hélt ég að hún væri bara eins og hvert annað fallegt andlit með bros eins og Cheshire kisa en hún er frábær fréttakona. Hún er klár og orðhög og hefir fallega, þægilega rödd.

Holly og Arnie.

Hún er náttúrutalent fyrir framan myndavélarnar og getur höndlað pressuna í beinni útsendingu. Og ofan á allt saman er hún frábær kylfingur. Lítið bara á myndirnar af henni í Quail Hollow og á Pro-Am mótinu á Arnold Palmer Invitational í Bay Hill Club. Wow!“