Higgins missir af Opna breska fyrir að vera með 15. kylfuna í úrtökumóti
David Higgins er Íri, sem spilar á Evrópumótaröðinni. Hann komst ekki í gegnum niðurskurð á Opna Írska, (líkt og hálf-landi hans Rory) og hann varð T-29 vikuna áður á BMW International Open.
Úrtökumót fóru fram á 4 stöðum fyrir Opna breska; þ.e.á Dunbar golfvellinum, East Lothian, Musselburgh og í North Berwick í Skotlandi og tók Higgins þátt í síðastnefnda úrtökumótinu og viti menn komst í 3 manna bráðabana…. sem hann tapaði fyrir að vera með 15. kylfuna í pokanum.
Starfsmenn R&A voru með fréttina á Twitter en þar sagði: „Fréttir af bráðabananum í North Berwick: David Higgins komst að því að hann væri með 15 kylfur í pokanum og hlaut 2 högg í víti og komst því ekki í gegn.“
Það sem gerðist skv. Irish Desk var að kylfusveinn Higgins geymdi aukabrautartré í pokanum eftir hefðbundinn leik og það gleymdist að taka brautartréð úr þegar Higgins hóf leik í bráðabananum. Dýrkeypt mistök það!
Fyrir þá sem hafa áhuga á golfreglunum þá braut Higgins hér reglu 4-4. Í því sambandi er e.t.v. rétt að geta þess að GSÍ og tryggingafélagið Vörður standa fyrir léttum sumarleik – REGLUVERÐI – þar sem reynir á kunnáttuna í golfreglunum. Hægt er að taka þátt í leiknum með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
