Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2021 | 17:00

Helga, Perla, Skúli og Veigar kepptu á European Young Masters í Finnlandi

Fjórir keppendur frá Íslandi tóku þátt á European Young Masters sem fram fór í Finnlandi dagana 22.-24. júlí.

Keppnisfyrirkomulagið  var með þeim hætti að leiknar voru alls 54 holur í höggleikskeppni eða 18 holur á dag.

Keppt var bæði í einstaklingskeppni (pilta og stúlkna) og liðakeppni.

Þrjú bestu skorin töldu hvern dag í liðakeppninni. Alls voru 27 lönd skráð til leiks. Golfmótið á sér ríka sögu og er eitt af flottustu mótum ársins fyrir kylfinga í þessum aldursflokki.

Íslenska liðið var þannig skipað:

Helga Signý Pálsdóttir, GR
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR
Skúli Gunnar Ágústsson, GA
Veigar Heiðarsson, GA

Keppnin fór skv. venju fram á Vierumäki Golf Club (Cooke course), sem er í tæplega tveggja klukkutíma fjarlægð frá flugvellinum í Helsinki. Völlurinn var opnaður árið 2006 og hefur haldið mörg stór golfmót á síðustu árum. Hann er 6411 metrar af meistarateigum karla og 5219 metrar af meistarateigum kvenna, par 72.

Sjá má hvernig Íslendingunum 4 vegnaði með því að SMELLA HÉR: