Haukur Örn Birgisson, varaforseti GSÍ. Mynd: Golf 1 Haukur Örn Birgisson nýr forseti GSÍ
Haukur Örn Birgisson var nú rétt í þessu kjörinn forseti GSÍ, á Golfþingi Golfsambands Íslands.
Jón Ásgeir Eyjólfsson, fv. forseti GSÍ, gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Þetta er í fyrsta sinn sem kosið er um forseta GSÍ, en Margeir Vilhjálmsson, fv. framkvæmdastjóri GR ákvað að gefa kost á sér í forsetastól gegn varaforsetanum, Hauki Erni.
Haukur Örn hlaut 121 atkvæði á móti 29 atkvæðum Margeirs, 1 atkvæði var autt og 1 atkvæði ógilt.
Haukur Örn er 34 ára hæstaréttarlögmaður sem starfar hjá Íslensku Lögfræðistofunni í Turninum við Smáratorg, í Kópavogi. Hann hefir verið í stjórn GSÍ s.l. 8 ár og þar áður starfaði hann sem almennur starfsmaður GSÍ í 4 ár. Haukur Örn er kvæntur og á 2 börn. Sjá má nýlegt viðtal við nýkjörinn forseta GSÍ Hauk Örn Birgisson með því að SMELLA HÉR:
Samhliða forsetakosningu fór fram kosning til stjórnar GSÍ en stjórnarmenn næstu 2 árin eru: Bergsteinn Hjörleifsson, GK; Bergþóra Sigmundsdóttir, GKG; Eggert Ágúst Sverrisson, GR; Gylfi Kristinsson, GS; Kristín Guðmundsdóttir, GÖ og Rósa Jónsdóttir, GÓ.
Athygli vekur að þetta er mesti fjöldi í kvenna í stjórn GSÍ frá upphafi.
Nýir í stjórn eru Bergsteinn Hjörleifsson, GK, Kristín Guðmundsdóttir, GÖ og Rósa Jónsdóttir, GÓ, en sú síðastgreinda hefir verið í varastjórn GSÍ undanfarin 2 ár.
Kristín Magnúsdóttir, GR, fv. ritari stjórnar, sem setið hefir óslitið í stjórn GSÍ undanfarin 12 ár og Guðmundur Friðrik Sigurðsson, GK nefndarmaður, sem einnig hefir setið í stjórn GSÍ undanfarin 12 ár gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
