Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 23. 2018 | 07:00

Haraldur Franklín mætir á Íslandsmótið í Eyjum

Íslandsmótið í golfi hefst fimmtudaginn n.k. 26. júlí í Vestmannaeyjum. Mótið er hluti af Eimskipsmótaröðinni og keppendahópurinn er gríðarlega sterkur.

Nú þegar hafa rúmlega 120 keppendur skráð sig til leiks en skráningarfrestur rennur út á miðnætti í kvöld, mánudaginn 23. júlí.

Hægt er að komast inn á vefsíðu GSÍ til þess að skrá sig í mótið með því að SMELLA HÉR: 

Íslandsmót í karlaflokki í golfi fór fram í fyrsta sinn árið 1942 og verður mótið í Vestmannaeyjum í ár það 77. í sögunni. Fyrstu fjögur árin var keppt í holukeppni á Íslandsmótinu en frá árinu 1946 hefur verið keppt í höggleik. Í kvennaflokki fór fyrsta Íslandsmótið fram árið 1967 og er keppt í kvennaflokki í 51. sinn.

Á meðal keppenda má nefna að Haraldur Franklín Magnús úr GR mætir til Eyja beint frá Carnoustie í Skotlandi þar sem hann tók þátt á Opna breska meistaramótinu.

Atvinnukylfingarnir Guðrún Brá Björgvinsdóttir (GK), Andri Þór Björnsson (GR) og Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR) eru skráð til leiks.

Fyrrum Íslandsmeistarar eru fjölmargir í keppendahópnum í Eyjum. Haraldur Franklín Magnús (GR) (2012), Ólafur Björn Loftsson (GK) (2009) Kristján Þór Einarsson (GM) (2008), Björgvin Þorsteinsson (GA), (1971,73, 74, 75, 76,77), Sigurður Pétursson (GR) (1982, 84,85), Ragnhildur Sigurðardóttir (1985, 98, 03, 05), Þórdís Geirsdóttir (GK)(1987).

Kristján Þór sigraði í Vestmannaeyjum árið 2008 og það gerði Ragnhildur Sigurðardóttir einnig árið 2003.

Atvinnukylfingarnir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Valdís Þóra Jónsdóttir, Axel Bóasson og Birgir Leifur Hafþórsson taka ekki þátt vegna verkefna á atvinnumótaröðum erlendis.

Hámarksfjöldi þátttakenda er 150 þar af allt að 30 konur. Þátttökurétt hafa bæði áhugamenn og atvinnumenn.

Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5 og skulu keppendur vera meðlimir í viðurkenndum golfklúbbi.

Ef fleiri skrá sig til leiks skal forgjöf ráða þátttökurétti þannig að þeir sem hafa lægri forgjöf ganga fyrir. Standi val á milli keppenda með jafnháa forgjöf skal hlutkesti ráða.

Mótsstjórn er heimilt að fjölga keppendum um 1-2, þó þannig að það fjölgi ekki ráshópum.

Eftirtaldir kylfingar eru skráðir til leiks:

Amanda Guðrún Bjarnadóttir GHD 3.8

Andrea Ýr Ásmundsdóttir GA 3.9

Andrea Björg Bergsdóttir GKG 0.7

Andri Þór Björnsson GR -2.9

Andri Már Guðmundsson GM 1.8

Andri Már Óskarsson GHR -0.8

Anna Júlía Ólafsdóttir GKG 7.8

Anna Sólveig Snorradóttir GK 1.8

Ari Magnússon GKG 2.0

Arna Rún Kristjánsdóttir GM 5.5

Arnór Snær Guðmundsson GHD -0.1

Aron Emil Gunnarsson GOS 3.6

Aron Skúli Ingason GM 2.2

Aron Snær Júlíusson GKG -2.8

Aron Atli Bergmann Valtýsson GK 4.8

Árný Eik Dagsdóttir GKG 4.5

Ásdís Valtýsdóttir GR 5.9

Benedikt Sveinsson GK 2.3

Berglind Björnsdóttir GR 0.9

Bergur Rúnar Björnsson GFB 4.4

Birgir Guðjónsson GJÓ 1.6

Birgir Björn Magnússon GK -0.7

Bjarni Þór Lúðvíksson GR 4.2

Bjarni Sigþór Sigurðsson GK 1.4

Bjarni Freyr Valgeirsson GR 4.5

Björgvin Þorsteinsson GA 3.5

Björn Óskar Guðjónsson GM -1.6

Brynjar Smári Unnarsson GV 5.4

Böðvar Bragi Pálsson GR 2.9

Dagbjartur Sigurbrandsson GR -1.1

Dagur Ebenezersson GM 2.7

Daníel Hilmarsson GKG 3.0

Daníel Ingi Sigurjónsson GV 2.9

Daníel Ísak Steinarsson GK 0.3

Einar Bjarni Helgason GFH 3.8

Elías Beck Sigurþórsson GK 4.3

Emil Þór Ragnarsson GKG 1.8

Eva Karen Björnsdóttir GR 3.6

Eva María Gestsdóttir GKG 3.3

Eyþór Hrafnar Ketilsson GA 1.0

Fannar Ingi Steingrímsson GHG -2.3

Finnur Gauti Vilhelmsson GR 4.7

Gauti Grétarsson NK 3.3

Gerður Hrönn Ragnarsdóttir GR 5.7

Gísli Sveinbergsson GK -2.8

Guðmundur Rúnar Hallgrímsson GS 0.1

Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK -2.7

Gunnar Ingi Björnsson GM 4.5

Gunnar Blöndahl Guðmundsson GKG 3.6

Hafdís Alda Jóhannsdóttir GK 3.6

Hallgrímur Júlíusson GV 3.5

Hákon Harðarson GR 2.1

Hákon Örn Magnússon GR -0.8

Heiða Guðnadóttir GM 3.8

Heiðrún Anna Hlynsdóttir GOS 4.2

Helga Kristín Einarsdóttir GK 1.4

Helgi Snær Björgvinsson GK 2.4

Helgi Birkir Þórisson GSE 1.8

Henning Darri Þórðarson GK -0.8

Hlynur Bergsson GKG -0.5

Hlynur Geir Hjartarson GOS -1.9

Hrafn Guðlaugsson GSE 0.8

Hulda Clara Gestsdóttir GKG 1.7

Ingunn Gunnarsdóttir GKG 3.0

Ingvar Andri Magnússon GKG -0.8

Jóhann Gunnar Kristinsson GR 4.5

Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir GR 4.1

Jóhannes Guðmundsson GR 0.5

Jón Andri Finnsson GR 4.5

Jón Gunnarsson GKG 1.5

Jón Hilmar Kristjánsson GM 3.3

Kjartan Sigurjón Kjartansson GR 4.7

Kristján Þór Einarsson GM -2.6

Kristófer Tjörvi Einarsson GV 2.6

Kristófer Karl Karlsson GM 0.8

Kristófer Orri Þórðarson GKG -0.5

Laufey Jóna Jónsdóttir GS 6.4

Lárus Ingi Antonsson GA 3.5

Lárus Garðar Long GV 1.9

Lóa Dista Jóhannsson GB 7.5

Margeir Vilhjálmsson GR 3.5

María Björk Pálsdóttir GKG 6.8

Nína Margrét Valtýsdóttir GR 7.6

Ólafur Björn Loftsson GKG -2.0

Patrekur Nordquist Ragnarsson GR 0.3

Perla Sól Sigurbrandsdóttir GR 6.4

Peter Henry Bronson GM 0.6

Rafn Stefán Rafnsson GB 3.4

Ragnar Már Garðarsson GKG -1.1

Ragnar Áki Ragnarsson GKG 3.2

Ragnar Már Ríkarðsson GM 1.7

Ragnhildur Kristinsdóttir GR -0.8

Ragnhildur Sigurðardóttir GR 1.5

Rúnar Arnórsson GK -2.2

Rúnar Þór Karlsson GV 3.5

Saga Traustadóttir GR 1.1

Sigurbjörn Þorgeirsson GFB 2.5

Sigurður Bjarki Blumenstein GR -0.2

Sigurður Arnar Garðarsson GKG -0.6

Sigurður Pétursson GR 3.0

Sigurður Már Þórhallsson – 4.5

Sigurlaug Rún Jónsdóttir GK 3.4

Stefanía Kristín Valgeirsdóttir GA 4.5

Stefán Þór Bogason GR -0.4

Stefán Þór Hallgrímsson GM 4.8

Stefán Már Stefánsson GR -0.4

Sturla Höskuldsson GA 4.6

Svanberg Addi Stefánsson GK 4.5

Sveinbjörn Guðmundsson GK 4.9

Sverrir Haraldsson GM 0.4

Særós Eva Óskarsdóttir GR 4.7

Theodór Emil Karlsson GM 0.4

Tómas Eiríksson Hjaltested GR 2.0

Tumi Hrafn Kúld GA -0.4

Vikar Jónasson GK -1.4

Viktor Ingi Einarsson GR 0.2

Viktor Snær Ívarsson GKG 5.0

Víðir Steinar Tómasson GA 2.3

Þórdís Geirsdóttir GK 3.4

Þórir Baldvin Björgvinsson GÖ 3.8

Örlygur Helgi Grímsson GV 0.9