Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2012 | 20:00

Hættulegustu golfvellir heims (7. grein af 10)

Á hverju ári fer fram World Ice Golf Championship, í Uummannaq, á Grænlandi.

„Ís-golfvöllurinn“ á Grænlandi breytist á hverju ári, allt eftir duttlungum náttúrunnar og lögun íssins.

Í mars á hverju ári (ef veður leyfir) er völlurinn lagður yfir breiður af fjöðrum og ísjökum.

Keppendur mætast síðan í 36 holu móti, því eina sem spilað er fyrir norðan heimskautsbaug.

Flatirnar eru úr snjó og kylfingar spila með rauðum boltum eða neon boltum og mega snerta yfirborðið til þess að slétta för eftir púttlínuför.

Að öðru leyti er þetta venjulegur golfhringur, ef  -50° á Celsius kuldinn er klæddur af sér – ef það er ekki gert er hæglega hægt að frjósa til dauða.

Síðan fellst hættan á grænlenska golfvellinum einkum í því að þar er hægt að rekast á ísbirni – sem víla ekki fyrir sér að rífa í sig kærulausa kylfinga.