Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2014 | 09:00

GVS: Styrktarmót fyrir A-sveitina í sveitakeppni GSÍ 5. júlí n.k.

Opið styrktarmót verður haldið laugardaginn 5 júlí fyrir A-sveit GVS í sveitakeppni GSI

Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu 3 sætin í punktakeppni og 3 verðlaun án forgjafar, eins verða veitt verðlaun fyrir 7. og 12. sætið í punktakeppninni.

Næstur holu á 3/12 og 8/17 og næstur holu í 2 höggi á 9/18 .

Það kostar aðeins 2,500 krónur í mótið.

Eins verður boðið upp á púttkeppni sem fólk getur tekið þátt í fyrir eða eftir leik eða bara tekið þátt í púttkeppninni, þitt er valið.

Það kostar aðeins 300 krónur og eru veitt verðlaun fyrir besta skor.

Vonandi koma sem flestir og styðja við bakið á sveit GVS!!!