Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2012 | 07:55

GVG: Sverrir Karlsson fór holu í höggi!

Sá ánægjulegi atburður gerðist þann 16. júní s.l. að Sverrir Karlsson, GVG, fór holu í höggi á 17. braut Bárarvallar á Grundarfirði (eða áttundu eins og þau í GVG eru vön að kalla hana), þ.e. höggið góða var slegið á seinni 9.

Sverrir fór holu í höggi í bikarmótinu þegar hann var að keppa við Jón Björgvin.

Greinilegt er að Sverrir kann við sig á 8. braut því á fyrri 9 fékk hann fugl á þá áttundu.

Til verksins notaði Sverrir svo dræver.

Golf 1 óskar Sverri innilega til hamingju með draumahöggið!

Heimild: GVG