Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 22. 2022 | 12:22

GV: Vestmannaeyjavöllur á leið í golfherma!

Á facebooksíðu GV birtist eftirfarandi frétt:

„Golfklúbbur Vestmannaeyja á leið í golfherma!
Högni Bergþórsson hefur undanfarið í samstarfi við Karl Haraldsson unnið að því að hanna Vestmannaeyjavöll á golfhermavænu formi.

Nú í haust verður hægt að spila okkar einstaka golfvöll í EYE-XO herminum í nýju æfingaaðstöðu klúbbsins.

Er þetta frábært skref fram á við sem mun auglýsa völlinn okkar enn frekar.

Við hlökkum til að fá kylfinga í heimsókn til okkar, hvort sem það er í hermum á veturna eða úti á sumrin!“

Frábært framtak!!!