Þrjár efstu í flokki 15-16 ára á Unglingamótaröð Arion banka, á Þverárvelli, 2. júní 2012. Sigurvegarinn Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG, (t.v.); Sara Margrét Hinriksdóttir, GK (f.m.) varð í 3. sæti og Ragnhildur Kristinsdóttir GR, (t.h.) í 2. sæti. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 3. 2012 | 23:00

Gunnhildur Kristjánsdóttir sigraði í flokki 15-16 ára telpna á 2. móti Unglingamótaraðar Arion banka á Þverárvelli að Hellishólum

Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG, sigraði í flokki 15-16 ára stúlkna á 2. móti Unglingamótaraðar Arion banka á Þverárvelli að Hellishólum í dag. Gunnhildur og Henning Darri Þórðarson, GK, í flokki 14 ára og yngri stráka, eru þau einu sem eru með fullt hús stiga eftir 2 mót, en þau bæði unnu einnig á fyrsta móti Unglingamótaraðarinnar upp á Skaga þann 27. maí s.l.  Frábærir kylfingar á ferð þar!

Gunnhildur spilaði hringina 2 á Þverárvelli á samtals +17 yfir pari, 159 höggum (81 78) og bætti sig um 3 högg milli hringja.

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, varð í 2. sæti á +19 yfir pari, 161 höggi (80 81), jafmörgum höggum og Sara Margrét Hinriksdóttir, GK, sem átti besta skorið í flokki 15-16 ára í mótinu og leiddi í gær á 75 glæsihöggum, en hafnaði því miður í 3. sæti.

Úrslit í flokki 15-16 ára telpna á 2. móti Unglingamótaraðar Arion banka urðu eftirfarandi:

Staða Kylfingur Klúbbur Fgj. Síðasti hringur Hringir Alls
Hola F9 S9 Alls Mismunur H1 H2 Alls Mismunur
1 Gunnhildur Kristjánsdóttir GKG 6 F 39 39 78 7 81 78 159 17
2 Ragnhildur Kristinsdóttir GR 4 F 40 41 81 10 80 81 161 19
3 Sara Margrét Hinriksdóttir GK 5 F 43 43 86 15 75 86 161 19
4 Birta Dís Jónsdóttir GHD 8 F 42 42 84 13 81 84 165 23
5 Helga Kristín Einarsdóttir NK 9 F 43 43 86 15 88 86 174 32
6 Hafdís Alda Jóhannsdóttir GK 10 F 50 40 90 19 85 90 175 33
7 Sigurlaug Rún Jónsdóttir GK 13 F 47 45 92 21 92 92 184 42
8 Karen Ósk Kristjánsdóttir GR 10 F 47 44 91 20 96 91 187 45
9 Ásdís Dögg Guðmundsdóttir GHD 11 F 48 39 87 16 101 87 188 46
10 Hanna María Jónsdóttir GK 9 F 45 48 93 22 96 93 189 47
11 Aldís Ósk Unnarsdóttir GSS 14 F 49 53 102 31 93 102 195 53
12 Alexandra Eir Grétarsdóttir GOS 18 F 51 50 101 30 99 101 200 58
13 Ásthildur Lilja Stefánsdóttir GKG 18 F 44 51 95 24 106 95 201 59
14 Andrea Anna Arnardóttir GR 14 F 56 49 105