Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 26. 2015 | 10:00

Gullni Björninn farinn að framleiða ís

„Það er ekkert leyndarmál að ég elska ís,“ sagði Jack Nicklaus alías „Gullni Björninn“ en hann hefir hafið ísframleiðslu og tilkynnti um framleiðslu sína á vefsíðu sinni s.l. þriðjudag, 24. febrúar 2015.

„Óþarfi að segja að ég hef aldrei skemmt mér eins mikið við rannsókn og þróun nokkurrar vöru.  Teymið á Schwan (fyrirtækið sem framleiðir ísinn í nafni Gullna Björnsins) er með háklassa vöruþróunarstöð.  Saman höfum við sett saman fjölbreyttar bragðtegundir ísa – allar með ekta (hágæða) hráefni – og höfum búið til gæða, fyrsta flokks ís á góðu verði,“ sagði Nicklaus.

Ísinn kostar 1,99 dollara út úr búð í Bandaríkjunum (þ.e. u.þ.b. 260 ísl kr.)

Hann er fáanlegur í eftirfarandi bragðtegundum:  Heimagerður Vanilluís (ens: Home Made Vanilla), Kaffi og kleinubragð (ens. Coffee and Donuts),  súkkulaðiþrenna (ens. Triple Chocolate), jarðaberjalímónaði bragð (ens.  Strawberry Lemonade), saltað karamellutoffí bragð (ens.:  Salted Caramel Toffee), hnetusmjörssnúningur (ens.: Peanut Butter Swirl) og loks heitur kryddsmjörspecanhnetuís (ens.:  Warm Spiced Butter Pecan).

Spennandi bragðtegundir, sem gaman verður að prófa hjá Gullna Birninum, þó ekkert golfbragð sé þar á meðal!