Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 17. 2021 | 22:00

Guðrún Garðars Íslandsmeistari 65+

Íslandsmót eldri kylfinga 2021 fór fram í Vestmannaeyjum dagana 15.-17. júlí.

Mikill áhugi var á mótinu og komust ekki allir að í mótinu sem sóttust eftir því.

Í flokki kvenna 65+ voru 9 keppendur.

Guðrún Garðars úr Golfklúbbi Reykjavíkur sigraði Íslandsmeistaratitilinn í flokki 65 ára og eldri en hún lék á samtals 272 höggum.

Í öðru sæti varð Ágústa Dúa Jónsdóttir úr NK á 286 höggum og Rakel Kristjánsdóttir úr GL varð þriðja á 296 höggum.

Sjá má öll úrslit í mótinu með því að SMELLA HÉR: