Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 28. 2017 | 07:00

Guðrún Brá T-3 á EM einstaklinga e. 2. dag

Guðrún Brá Björgvinsdóttir (GK) er í toppbaráttunni þegar keppni er hálfnuð á Evrópumóti einstaklinga í kvennaflokki. Guðrún lék á -3 á fyrsta keppnisdeginum af alls fjórum og í dag lék hún á -2 eða 70 höggum.

Síðari 9 holurnar hjá Guðrúnu Brá voru stórkostlegar þar sem hún fékk alls sex fugla og lék hún á 30 höggum. Hún lagaði þar með stöðuna eftir að hafa fengið fjóra skolla á fyrri 9 holunum.

Eftir 2. keppnisdag er Guðrún Brá á samtals 5 undir pari, 139 höggum (69 70). Hún deilir 3. sætinu með Alessöndru Fannali frá Ítalíu, þ.e er T-3.

Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR er í 140. sæti á +22 samtals og Saga Traustadóttir úr GR er í 129. sæti á +12 samtals.

Allir bestu áhugakylfingar Evrópu taka þátt á þessu móti.

Alls verða leiknir 4 hringir á fjórum keppnisdögum og eru 144 keppendur sem taka þátt. Mótið fer fram í Sviss rétt norðan við borgina Lausanne en keppnisvöllurinn er í 850 metra hæð.

Sjá má stöðuna í mótinu með því að SMELLA HÉR: