Guðrún Brá og Kristján Þór sigruðu á sögulegu skori í Korpubikarnum
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, og Kristján Þór Einarsson, GM, sigruðu í Korpubikarnum sem fram fór í samvinnu við Icelandair á Korpúlfsstaðavelli dagana 19.-21. ágúst 2022.
Mótið var jafnframt lokamótið á stigamótaröð GSÍ.
Keppniformið var höggleikur í flokki karla og kvenna, 54 holur leiknar, 18 holur á föstudegi, 18 holur á laugardegi og 18 holur á sunnudegi.
Guðrún Brá lék frábært golf og lék samtals á 12 höggum undir pari vallar. Hún sigraði með 12 högga mun. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, Íslandsmeistari í golfi 2022, varð önnur á pari vallar og Berglind Björnsdóttir, GR, varð þriðja á 2 höggum yfir pari.
Kristján Þór, sem er Íslandsmeistari í golfi 2022, lék á 18 höggum undir pari vallar sem er samkvæmt bestu heimildum besti árangur sem íslenskur kylfingur hefur náð á 54 holum.
Axel Bóasson, GK, sem er þrefaldur Íslandsmeistari, átti einnig frábæra þrjá keppnisdaga en hann lék á 16 höggum undir pari vallar. Hlynur Bergsson, og Hjalti Hlíðberg Jónasson, sem eru báðir úr GKG, og Böðvar Bragi Pálsson, GR léku allir á 8 höggum undir pari vallar.
Alls léku 16 leikmenn í mótinu í karlaflokki undir pari vallar – sem er frábær árangur í golfmóti á Íslandi.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:




- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
