Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2021 | 18:00

Guðrún Brá íþróttakona Hafnarfjarðar

Atvinnukylfingurinn úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, var valin íþróttakona Hafnarfjarðar í dag, 28. desember 2021.

Fór kosningin fram rafrænt á miðlum Hafnarfjarðar í dag.

Á vefmiðlinum hafnarfjordur.is sagði um Guðrúnu Brá:

Guðrún Brá er ein af fremstu kylfingum landsins og hefur verið það í mörg ár. Hún er kvenkylfingur Golfsambands Íslands og Keilis 2021. Á árinu varð hún Íslandsmeistari kvenna í holukeppni og sigraði á móti B59 á mótaröð þeirra bestu. Guðrún Brá er atvinnukylfingur í golfi og leikur á Evrópumótaröð kvenna þar sem hún var með fullan þátttökurétt á árinu. Hún tók þátt í sextán mótum á árinu og vann sér inn þátttökurétt á lokamóti á Evrópumótaröðinni á Spáni í nóvember sl. Besti árangur hennar í ár var 12. sæti á Aramaco mótinu á Englandi í júlí og 8. sæti á ATS í Saudi Arabíu í nóvember. Guðrún Brá endaði í 75. sæti á styrkleikalista LET Evrópumótaraðarinnar og er í sæti 649 á heimslista atvinnukvenna í golfi. Guðrún Brá heldur fullum rétti á árinu 2022 á LET mótaröðinni sem hefst í febrúar. Hún er fjórða íslenska konan sem náð hefur keppnisrétt á mótaröðinni.

Í aðalmyndaglugga: Guðrún Brá Björgvinsdóttir.  Mynd: hafnarfjordur.is