Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 8. 2014 | 20:00

Guðmundur Ágúst lék best af íslensku keppendunum á EM karlalandsliða

Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR lék best okkar manna á fyrsta degi EM karlalandsliða sem fram fer í Finnlandi. Keppt er á Linna golfvellinum sem er staðsettur um 100 km frá Helsinki rétt utan við bæinn, Hameenlinna. Hægt er að nálgast ítarlegar upplýsingar um mótið og sker keppenda má finna með því að  SMELLA HÉR:

Keppnisfyrkomulag: Að loknum höggleik fyrstu tvo dagana verður liðum raðað í tvo riðla, A og B, eftir árangri. Fyrstu 8 leika í A riðli og keppa um Evrópumeistaratitilinn á þremur dögum í holukeppni, sæti 1 gegn 8, 2 gegn 7 osfrv. Sæti 9-16 keppa einnig í holukeppni, þjóð gegn þjóð, um að halda þátttökurétti sínum í keppninni að ári, en 13 efstu fá þátttökurétt á næsta ári.

T38 – Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Golfklúbbi Reykjavíkur, 72 högg, par

T48 – Haraldur Franklín Magnús, Golfklúbbi Reykjavíkur, 73 högg, +1

T64 – Gísli Sveinbergsson, Golfklúbbnum Keili, 74 högg, +2

T86 – Ragnar Már Garðarsson, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, 77 högg, +5

T90 – Andri Þór Björnsson, Golfklúbbi Reykjavíkur, 79 högg, +7

T94 – Bjarki Pétursson, Golfklúbbi Borgarness, 81 högg, +9

 

Þjálfari: Birgir Leifur Hafþórsson

Liðsstjóri: Gauti Grétarsson

 

Fimm bestu skorin telja eftir hvern dag í höggleiknum, skor Bjarka mun því ekki telja í dag.