GSÍ: Yfir 500 í mótum GSÍ um helgina
Það verður nóg um að vera hjá afrekskylfingum landsins um helgina víðsvegar um landið og verða vel á fimmta hundrað keppendur á öllum aldri í harðri keppni sín á milli.
Nýherjamótið, lokamót Eimskipsmótaraðarinnar, hefst á laugardaginn á Urriðvelli hjá Golfklúbbnum Oddi. Færri komust að en vildu í þetta mót en keppendur eru rúmlega 80. Leiknir verða tveir hringir á laugardeginum og lokahringurinn verður síðan leikinn á sunnudag.
Efstu kylfingarnir á stigalista Eimskipsmótaröðinni taka allir þátt í mótinu, en Axel Bóasson GK er sem stendur efstur á stigalistanum með 5505 stig en í öðru sæti er Kristján Þór Einarsson GM með 4387 stig.
Í kvennaflokki leiðir Tinna Jóhannsdóttir GK stigalistann með 4965 stig en fast á hæla hennar kemur Íslandsmeistarinn Signý Arnórsdóttir GK með 4865 stig.
Fimmta mótið á Íslandsbankamótaröð unglinga fer fram á Hamarsvelli í Borgarnesi og hófst keppni í dag í flokki 17-18 ára. Rúmlega 110 kylfingar taka þátt og er hörð keppni um stigameistaratitlana. Að venju er keppt í þremur aldursflokkum hjá báðum kynjum.
Tæplega 50 kylfingar taka þátt á Áskorendamóti sem fram fer á Glanna í Borgarfirði á laugardaginn. Það er einnig keppt í þremur aldursflokkum hjá báðum kynjum. Áskorendamótaröðin er ætluð þeim kylfingum sem vilja öðlast keppnisreynslu áður en stigið er á stóra sviðið á Íslandsbankamótaröðinni.
Keppt er í sveitakeppnum eldri kylfinga á tveimur stöðum á landinu. 1. deild karla fer fram í Öndverðarnesi þar sem átta sveitir keppa um titilinn. Rúmlega 70 kylfingar taka þátt í þessari keppni. Golfklúbbur Reykjavíkur, Golfklúbburinn Keilir, Golfklúbbur Suðurnesja, Golfklúbbur Öndverðarnes, Golfklúbburinn Oddur, Nesklúbburinn, Golfklúbbur Akureyrar, Golfklúbbur Vestmannaeyja. Hægt er að fylgjast með gangi mála með því að SMELLA HÉR:
Keppni í 2. og 3. deild karla fer fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði. Þar eru alls 12 sveitir, 8 í 2. deild og 4 í 3. deild. Alls eru um 100 keppendur í Sandgerði. Hægt er að fylgjast með gangi mála með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
