Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 24. 2015 | 08:00

GSÍ: Handhafar GSÍ korta greiði 1500 kr. fyrir hvern hring

Miklar umræður áttu sér stað á þingi Golfsambandsins, sem fram fór nú um helgina, 21.-22. nóvember s.l. um GSÍ kortin, sem gefin eru út til samstarfsaðila GSÍ, fjölmiðla og klúbba.

Samþykkt var á þinginu að handhafar GSÍ korta greiði 1500 kr. gjald á þeim völlum sem þeir nota kortið.

Handhafar GSÍ korta geta leikið tvívegis á öllum völlum sem eru innan raða GSÍ tvívegis á hverju ári.

Tillaga þess efnis að þeir sem nýti sér GSÍ kortin greiði 1500 kr. gjald fyrir hvern kylfing var samþykkt einróma.

Alls voru leiknir 4.319 hringir á árinu 2015 þar sem GSÍ kortin voru notuð en alls voru gefin út 1.172 GSÍ kort.

Nánari upplýsingar um notkun á GSÍ kortum á árinu 2015 má finna á bls. 26 í ársskýrslu GSÍ sem sjá má með því að

SMELLA HÉR: