Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2016 | 12:00

GSÍ færir nemendum í golfáfanga FB SNAG kennslubók

Nemendur í golfáfanga í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti eru fyrstu framhaldsskólanemendurnir sem fá íslensku SNAG kennslubókina afhenta sem námsgögn í golfnámi sínu. Golfsamband Íslands gefur nemendunum bókina enda er mikilvægt að kennarar og nemendur styðjist við námsefni á íslensku í golfkennslu og golfnámi.

Torfi Magnússon, sem stýrir íþróttabrautinni í FB og býður upp á golfnámið, hefur stuðst við SNAG golfkennslufræðina – og búnaðinn.

Fyrir utan golfnámið sjálft fá nemendur í golfáfanganum einnig að hanna golfbrautir og golfvelli inni í sal og umhverfis skólann og spila og keppa bæði inni og úti við eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan (Myndir: GSÍ):

1-a-

10-a

11-a

12-a-

13-a

14-a-

15-a-

16-a-

17-a

18-a-