GSÍ fær viðbótarstyrkveitingu úr Afrekssjóði ÍSÍ
Golfsamband Íslands (GSÍ) hefur hlotið viðbótarstyrkveitingu úr Afrekssjóði ÍSÍ vegna landsliðsverkefna ársins 2017.
Um er að ræða styrk að upphæð 6 milljónir. kr. sem bætist við fyrri úthlutun til sambandsins, en sambandið hlaut styrk að upphæð 8.850.000 kr. í fyrri úthlutun ársins úr Afrekssjóði ÍSÍ.
Afreksstarf sambandsins hefur verið umfangsmikið á árinu og hefur velgengni afrekskylfinga á erlendri grundu verið einstök.
Slíkt hefur haft aukinn kostnað í för með sér umfram áætlanir fyrir sambandið en þess ber að geta að auk þátttöku einstaklinga í mótaröðum og stórmótum þá hefur sambandið einnig sent fjölmarga einstaklinga og lið til keppni á Evrópumótum áhugamanna með góðum árangri.
Þá hefur umgjörð afreksstarfsins fengið aukið vægi hjá sambandinu og verið er að vinna að nýrri afreksstefnu þar sem sambandið hefur nú þegar náð flestum þeim markmiðum sem sett voru í fyrri stefnu og það töluvert fyrr en væntingar voru til.
Styrkur Afrekssjóðs ÍSÍ hjálpar til við að standa undir hluta þeirra afreksverkefna sem eru í gangi á vegum sambandsins og efla jafnframt það afreksstarf sem er í miklum vexti hjá sambandinu.
Texti og mynd: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
