Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 9. 2013 | 05:00

GSG: Kastað til bata 13. júlí n.k.

Á laugardaginn n.k., þann 13. júlí fer fram golfmótið „Kastað til bata“ á Kirkjubólsvelli.

Þetta er styrktarmót fyrir Krabbameinsfélag Íslands, haldið í samvinnu við Samhjálp kvenna og ýmsa styrktaraðila.

Leikformið er Texas Scramble, tveir í liði og deilt í forgjöf liðsins með 3.

Glæsileg verðlaun eru veitt fyrir 4 efstu liðin:

1. verðlaun: 2 x 50.000 kr gjafabréf frá Nettó

2. verðlaun:  2x Expence Comfort pakki að verðmæti 10,400 kr ásamt 2* þriggja rétta máltíð frá Lava .

3. verðlaun: 2 x15,000 kr gjafabréf frá Orkunni

4. verðlaun: OSAHA bakpokar að andvirði 14,900 frá N1

Nándarverðlaun á 17. braut: Samsung Galaxy Ace 2 að verðmæti 54,900 frá Símanum .

Dregið úr skorkortum viðstaddra

Nú er um að gera að taka laugardaginn næsta frá, bregða sér í bíltúr til Sandgerðis á Kirkjubólsvöll, styrkja gott málefni og taka um leið þátt í skemmtilegu móti!

Það má skrá sig í mótið með því að SMELLA HÉR: