GS: Karen kylfingur ársins 2014!
Karen Guðnadóttir var kjörinn kylfingur ársins hjá Golfklúbbi Suðurnesja á aðallfundi 8. desember 2014, en hún átti frábært keppnistímabil og endaði sem stigameistari GSÍ árið 2014.
Karen varð m.a. klúbbmeistari kvenna í GS 2014.
Á Eimskipsmótaröðinni í ár (2014) byrjaði Karen vel á heimavelli sínum, Hólmsvelli í Leiru en hún varð í 3. sæti í kvennaflokki, í því úrhelli sem mótið fór fram í; lék samtals á 24 yfir pari (82 77 81).
Á 2. mótinu (Gullmótinu) á Hellu varð Karen í 3.-7. sæti á samtals 16 yfir pari.
Á 3. mótinu í Borgarnesi (Símamótinu) varð Karen í 7. sæti og í 4. mótinu sem var Íslandsmótið í holukeppni og fram fór á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði keppti Karen til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn, en hafnaði í 2. sæti.
Á 5. mótinu (Íslandsmótinu í höggleik), sem fram fór á Leirdalsvelli hjá GKG, varð Karen í 5. sæti á samtals 23 yfir pari og á 6. mótinu sem fram fór á Garðavelli á Akranesi varð Karen í 3. sæti á samtals 15 yfir pari.
Karen varð loks í 2. sæti á 7. og síðasta mótinu á Eimskipsmótaröðinni sem fram fór á Jaðrinum (Goðamótinu) á samtals 18 yfir pari (75 75 81).
Glæsilegt ár hjá Karen sem aldrei varð neðar en í 7. sæti á Eimskipmótaröðinni í kvennaflokki í ár … og frábær kylfingur í alla staði, þar sem Karen er!!!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

