GS: Jóhann Páll Kristbjörnsson nýr formaður
Á heimasíðu GS má lesa eftirfarandi frétt um aðalfund Golfklúbbs Suðurnesja (GS):
Þrátt fyrir afleitt veður var ágætis mæting á aðalfund GS sem haldinn var í golfskálanum í Leiru 8. desember 2014. Dagskrá fundarins var með hefðbundnu sniði, Júlíus Jónsson var kosinn fundarstjóri og stýrði hann fundinum örugglega.
Formaður GS, Friðjón Einarsson, las skýrslu formanns og fór yfir það sem hæst hafði borið á árinu. Þá fór framkvæmdastjóri GS, Gunnar Þór Jóhannsson, yfir ársreikninginn og var hann samþykktur. Golfklúbbur Suðurnesja kom nánast út á sléttu á árinu sem er ánægjulegt í ljósi þess hve afleitt tímabilið var veðurfarslega.
Nýr formaður og nýtt fólk í stjórn
Friðjón Einarsson lætur af störfum formanns og tilnefndi uppstillingarnefnd Jóhann Pál Kristbjörnsson sem næsta formann, það var samþykkt. Þá voru tillögur uppstillingarnefndar um skipan stjórnar samþykkt. Nýir í stjórn GS eru þau Hilmar Björgvinsson og Guðmundur Rúnar Hallgrímsson í aðalstjórn, og Ísak Ernir Kristinsson, Sigurrós Hrólfsdóttir og Georg Arnar Þorsteinsson í varastjórn. Karitas Sigurvinsdóttir gaf kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn og þá sitja þau Hafdís Ævarsdóttir, Davíð Viðarsson og Jón Ingi Ægisson í eitt ár í viðbót.
Lagabreytingar
Ný lög Golfklúbbs Suðurnesja voru samþykkt á fundinum. Á fundinum voru bornar upp breytingartillögur sem ný stjórn mun taka fyrir og bera undir félagsmenn á næstunni, í kjölfarið verður boðað til sérstaks aukafundar þar sem lögin verða borin upp til atkvæðagreiðslu með smávægilegum breytingum.
Lagabreytingar
Ný lög Golfklúbbs Suðurnesja voru samþykkt á fundinum. Á fundinum voru bornar upp breytingartillögur sem ný stjórn mun taka fyrir og bera undir félagsmenn á næstunni, í kjölfarið verður boðað til sérstaks aukafundar þar sem lögin verða borin upp til atkvæðagreiðslu með smávægilegum breytingum.
Texti: Jói
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
