GS: Fjóla Margrét og Logi klúbbmeistarar í fyrsta sinn!
Þá er Meistaramóti GS 2021 lokið eftir skemmtilega en erfiða viku þar sem kylfingar glímdu við Hólmsvöll í sínu besta standi, krefjandi en sanngjarnan. Einnig blés vel á kylfinga mest allan tímann ásamt smá náttúrulegri vökvun reglulega.
Þátttakendur sem luku keppni í meistaramóti GS 2021 voru 124 og kepptu þeir í 15 flokkum.
Alls voru því 15 klúbbmeistarar krýndir í vikunni. Í meistaraflokki karla var það Logi Sigurðsson sem sigraði meistaramótið í fyrsta sinn á 295 höggum, fjórum höggum á undan tíföldum klúbbmeistara Guðmundi Rúnari Hallgrímssyni. Í þriðja sæti varð svo Pétur Þór Jaidee þremur höggum þar á eftir. Í meistaraflokki kvenna var það Fjóla Margrét Viðarsdóttir sem einnig sigraði sitt fyrsta meistaramót á 340 höggum en hún spilaði jafnt golf alla fjóra hringina. Andrea Ásgrímsdóttir varð í öðru sæti á 353 höggum.
Meistaramótið gekk vel í alla staði og vill mótsstjórn þakka öllum sem komu að framkvæmd mótsins. Mótið endaði svo með glæsilegu lokahófi þar sem viðstaddir skemmtu sér vel frameftir kvöldi.
Úrslit keppenda í hverjum flokki fyrir sig er eftirfarandi:
Meistaraflokkur karla:
1. Logi Sigurðsson 295 högg
2. Guðmundur Rúnar Hallgrímsson 299 högg
3. Pétur Þór Jaidee 302 högg
Meistaraflokkur kvenna:
1. Fjóla Margrét Viðarsdóttir 340 högg
2. Andrea Ásgrímsdóttir 353 högg
1. flokkur karla:
1. Davíð Viðarsson 323 högg
2. Gunnlaugur Atli Kristinsson 325 högg
3. Sigurður Vignir Guðmundsson 326 högg
2. flokkur karla:
1. Bjarni Sæmundsson 334 högg
2. Ragnar Lárus Ólafsson 343 högg
3. Guðfinnur Sævald Jóhannsson 347 högg
2. flokkur kvenna:
1. Sara Guðmundsdóttir 396 högg
2. Sigurrós Hrólfsdóttir 404 högg
3. Karitas Sigurvinsdóttir 404 högg
3. Anna María Sveinsdóttir 404 högg
3. flokkur karla:
1. Vilmundur Ægir Friðriksson 351 högg
2. Róbert Örn Ólafsson 357 högg
3. Sigurður Guðmundsson 358 högg
4. flokkur karla:
1. Páll Guttormsson 385 högg
2. Annel Fannar Annelsson 388 högg
3. Jóhannes Ellertsson 389 högg
50+ opinn flokkur karla (án forgjafar):
1. Kristinn Óskarsson 299 högg
2. Sigurður Sigurðsson 310 högg
3. Kristján Björgvinsson 318 högg
50+ opinn flokkur karla (með forgjöf):
1. Sigurþór Sævarsson 292 högg
2. Ólafur Birgisson 293 högg
3. Sigurður Sigurðsson 298 högg
Opinn flokkur kvenna (punktar):
1. Anna Steinunn Halldórsdóttir 111 punktar
2. Theódóra Friðbjörnsdóttir 92 punktar
3. Ragnhildur H. Guðbrandsdóttir 85 punktur
Öldungaflokkur karla 65+ (punktar):
1. Þorsteinn Geirharðsson 95 punktar
2. Gunnar Þórarinsson 90 punktar
3. Þórður Karlsson 86 punktar
Háforgjafarflokkur karla:
1. Árni Þór Ármannsson 66 punktar
2. Guðmundur Árni Þórðarson 46 punktar
3. Helgi Bergsson 37 punktar
Háforgjafarflokkur kvenna:
1. Eygló Anna Tómasdóttir 61 punktur
2. Guðrún Ösp Theodórsdóttir 26 punktar
Heimild: gsgolf.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
