50 ára afmælismót GS fór fram 5. apríl 2014. Á flöggunum stendur: Hólmsvöllur í hálfa öld – Verið velkomin í Leiruna! Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 14. 2015 | 17:00

GS: Birkir Þór nýr umsjónarmaður Leirunnar

Búið er að ráða í starf umsjónarmanns golfvallar Golfklúbbs Suðurnesja

Í gær var gengið frá ráðningu Birkis Þórs Karlssonar í starf umsjónarmanns golfvallar hjá GS.

Birkir er 27 ára gamall fjölskyldumaður, kemur frá Bíldudal en hefur búið í Reykjanesbæ undanfarin ár.

Hann starfaði við golfvöllinn á Bíldudal frá tólf ára aldri og var vallarstjóri þar árin 2007-2012 við góðan orðstí.

Birkir hefur störf um miðjan þennan mánuð.

Þá er búið að ganga frá ráðningu þeirra fastráðnu starfmanna sem klúbburinn þarf á að halda, en auk þeirra verða fleiri ráðnir tímabundið yfir golfvertíðina.