GS: 8 kylfingar verða með leikmannasamning við GS
Á heimasíðu Golfklúbbs Suðurnesja (GS) má lesa eftirfarandi frétt:
„Sjö kylfingar hafa skrifað undir leikmannasamninga við Golfklúbb Suðurnesja. Leikmennirnir eru Laufey Jóna Jónsdóttir, Zuzanna Korpak, Kinga Korpak, Kristján Jökull Marínósson, Geirmundur Ingi Eiríksson, Björgvin Sigmundsson og Guðmundur Rúnar Hallgrímsson. Karen Guðnadóttir mun bætast í þennan hóp síðar, hún er búsett erlendis en mun keppa á Íslandi í sumar.
Leikmannasamningarnir kveða m.a. á um að kylfingurinn keppi undir merkjum GS á samningstímanum, sé fyrirmynd annara utan vallar sem innan og aðstoði við æfingar yngri hópa. Á móti leitast GS m.a. við að sjá kylfingunum fyrir bestri mögulegu aðstöðu til æfinga og einkatímum hjá íþróttastjóra, að auki styrkir GS kylfingana með greiðslu mótsgjalda og ýmsum búnaði til keppni.
Þetta er í fyrsta sinn sem Golfklúbbur Suðurnsesja gerir leikmannasamninga við sína keppendur og er það von stjórnar að þessir samningar leggi grunn að farsælu keppnistímabili Golfklúbbsins og kylfinga þess.„
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
