GS: 4 með ása á Hólmsvelli
Það er ótrúlegt en satt en með stuttu millibili hafa 4 kylfingar úr GS farið holu í höggi á heimavellinum, Hólmsvelli í Leiru.
Þann 28. júní fór Arnar Ástþórsson holu í höggi í Bergvíkinni (3. holunni).
Í fyrradag, 2. júlí 2013, fór síðan Snæbjörn Guðni Valtýsson holu í höggi á 16. braut Hólmsvallar á Meistaramóti GS og notaði til þess 7-járn.
Það var síðan í gær, 3. júlí 2013 sem Valdimar Birgisson gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á erfiðu 13. brautinni (með vatnið fyrir framan). Valdimar var einnig að spila í Meistaramóti GS.
Þess mætti til gamans geta að Ragnar Hauksson var bæði í ráshóp með Snæbirni Guðna þegar hann fór holu í höggi og síðan Valdimar, þegar hann sló draumahögg sitt, þannig að Ragnar virðist vera mjög ásahvetjandi og hafa góð áhrif á spilafélaga sína!
Loks var það Sigurður Sævarsson, sem fór holu í höggi á 16. brautinni, líka í Meistaramóti GS og líka í gær!
4 ásar á viku, þar af 3 ásar á 2 dögum á Meistaramóti GS!!! Glæsilegt þetta!!!
Golf 1 óskar kylfingunum 4 innilega til hamingju með draumahöggin!!!
Spenningurinn á Suðurnesjum er nú hverjum takist að fara holu í höggi á 8. brautinni, sem er eina par-3 hola vallarins, sem er óásuð í þessari mikla ásadrífu s.l. daga?
Heimild og myndir: gs.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024


