Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2014 | 08:00

Greg Chalmers sigraði á PGA Australian Masters e.bráðabana við Scott og Ormsby

Nr. 3 á heimslistanum, Adam Scott var í sigurvænlegri stöðu fyrir lokahringinn í gær á PGA Australian Masters, en í dag átti hann fyrsta hring sinn yfir 70 þ.e. lék lokahringinn á 71 höggi og það dugði til þess að þeir Greg Chalmers, sem átti afburðadag, þar sem hann lék á 64 glæsihöggum og Wade Ormsby jöfnuðu við hann.

Það varð að koma til bráðabana milli þeirra þriggja þar sem þeir voru allir jafnir að loknum 72 hefðbundnum spiluðum holum; þ.e. allir á 11 undir pari, 277 höggum; Adam Scott (68 69 69 71); Greg Chalmers (71 71 71 64) og Wade Ormsby (68 67 71 71).

Bráðabaninn var æsispennandi. Ormsby datt út eftir 3 spilaðar holur þegar hann var á pari, en Chalmers og Scott fengu fugla. Bráðabaninn hélt því áfram milli Chalmers og Scott og fór á 7. holu bráðabana þar sem Chalmers vann með pari meðan Scott fékk skolla.

Adam Scott tókst því heldur ekki að verja titil sinn á PGA Australian Masters nú í ár, en Greg Chalmers stóð uppi sem sigurvegari.

Í 4. sæti varð Ástralinn Michael Hendry  (á samtals 9 undir pari); í 5. sæti varð Bandaríkjamaðurinn Scott Stallings ( á samtals 8 undir pari) og í 6. sæti varð Boo Weekley ( á samtals 7 undir pari).   Matt Giles og Scott Strange deildu síðan 7. sætinu (á samtals 6 undir pari, hvor).

Til þess að sjá lokastöðuna á PGA Australian Masters SMELLIÐ HÉR: