Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 22. 2015 | 14:00

GR: Skýrsla um framtíð Grafarholtsvallar

Haldinn verður kynningarfundur, þriðjudaginn 28. apríl kl.20:00 í golfskálanum í Grafarholti, um framtíð Grafarholtsvallar. Stjórn GR hvetur alla félagsmenn að kynna sér skýrsluna vel fyrir fundinn en hana er hægt að nálgast á heimasíðu félagsins.

Nauðsynlegt er að spurningar komi frá félagsmönnum upp á umræðuna vegna framtíðar vallarins. Skýrslan hefur verið þýdd yfir á íslensku og því einfalt mál að afla sér allra upplýsinga um völlinn í skýrslunni. Skýrsluna má lesa í heild sinni með því að SMELLA HÉR: 

Hafa ber í huga að fundurinn sem haldinn verður þann 28. apríl nk. er eingöngu kynningarfundur. Ekki mun liggja fyrir lokaniðurstaða um framtíð vallarsins að loknum fundi. Niðurstaðan sjálf, ef allt gengur að óskum, verður tekinn á aðalfundi Golfklúbbs Reykjavíkur sem haldin verður í desember síðar á þessu ári.

Það er von GR að félagsmenn fjölmenni og taki virkan þátt þann 28. apríl næstkomandi kl.20:00.