Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 8. 2015 | 08:30

GR: Meistaramóti barna og unglinga lokið – mörg glæsileg skor!

Í gær, 7. júlí 2015 lauk Meistaramóti GR í þeim flokkum sem léku 54 holur en það eru barna-og unglingaflokkar, öldungaflokkar, 3.flokkur karla, 4.flokkur karla, 5.flokkur karla og 3.flokkur kvenna. Leikið var bæði í Grafarholti og á Korpúlfsstöðum í blíðviðri.

Lokahóf barna og unglinga fór fram í golfskálanum í Grafarholti þar sem veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki. Glæsileg skor sáust í unglingaflokkum í ár og er ljós að framtíðin er björt fyrir krakkana og Golfklúbb Reykjavíkur.

Verðlaunaafhending fyrir aðra flokka verður haldin á Korpúlfsstöðum á laugardagskvöldið næstkomandi og verður nánar auglýst í vikunni.

Golfklúbbur Reykjavíkur þakkar öllum keppendum þátttökuna og óskar öllum vinningshöfum innilega til hamingju með árangurinn.

Úrslit

12 ára og yngri hnátur – Gull teigar
1. sæti: Helga Signý Pálsdóttir 344
2. sæti: Karen Nordquist Ragnarsdóttir 352

12 ára og yngri hnátur – Rauðir teigar
1. sæti: Nína Margrét Valtýsdóttir 293
2. sæti: Katrín Lind Kristjánsdóttir 309
3. sæti: Brynja Valdís Ragnarsdóttir 311

12 ára og yngri hnokkar
1. sæti: Böðvar Bragi Pálsson 219
2. sæti: Einar Andri Víðisson 267
3. sæti: Elías Ágúst Andrason 277

13-14 ára stelpur
1. sæti: Ásdís Valtýsdóttir 304
2. sæti: Lovísa Ólafsdóttir 359

13-14 ára strákar
1. sæti: Sigurður Bjarki Blumenstein 212
2. sæti: Tómas Eiríksson 243
3. sæti: Bjarni Freyr Valgeirsson 261

15-16 ára drengir
1. sæti: Ingvar Andri Magnússon 221
2. sæti: Viktor Ingi Einarsson 229
3. sæti: Elvar Már Kristinsson 239

17-18 ára piltar
1. sæti: Oddur Þórðarsson 245
2. sæti: Jón Frímann Jónsson 247
3. sæti: Arnar Ingi Njarðarson 267