
GR: Jón Pétur áfram formaður Golfklúbbs Reykjavíkur
Jón Pétur Jónsson var endurkjörinn formaður Golfklúbbs Reykjavíkur á aðalfundi klúbbsins sem fram fór í golfskálanum í Grafarholti miðvikudaginn 5. desember s.l.. Jón Pétur er að hefja sitt sjötta ár sem formaður Golfklúbbs Reykjavíkur. Nýkjörinn formaður vill koma á framfæri þökkum til félagsmanna með það traust sem honum var sýnt með endurkjöri. Helga Harðardóttur sem hefur verið gjaldkeri klúbbsins gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu og í hennar stað var kjörin Guðný Helga Guðmundsdóttir til eins árs. Aðrir stjórnarmeðlimir gáfu kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
Félagsmönnum var kynnt starfsárið sem var að líða. Hagnaður á rekstri klúbbsins á starfsárinu var um 7,2 milljónir króna, en til samanburðar var hagnaður síðasta árs rúmar 12 milljónir króna. Tekjur námu alls 346 millj. kr samanborið við 330 millj. kr á árinu 2011. Fjárhagsáætlun næsta árs gerir ráð fyrir tæplega 37 milljón króna hagnaði.
Sumarið 2012 verður lengi í hugum manna sem eitt það albesta bæði veðurfarslega sem og vegna vallaraðstæðna og kemur það fram í mjög miklum golfleik. Spilaðir hringir í Grafarholti voru 36.873 á móti 32.488 árið á undan eða um 13% aukning. Korpúlfsstaðavöllur opnaði 21. apríl og þar voru leiknir 37.998 hringir á móti 35.071 árið á undan sem er um 8% aukning.
Aðalfundurinn samþykkti gjaldskrá félaga fyrir næsta ár, að tillögu stjórnar.
Félagsmenn 21 – 66 ára verður 85.000 kr. eða 4% hækkun.
Félagsmenn 67 ára og eldri verður 50.000 kr eða 11% hækkun.
Félagsmenn 18 – 20 ára verður 41.000 kr. eða 4% hækkun.
Félagsmenn 11 – 17 ára verður 28.000 kr. eða 4% hækkun.
Félagsmenn 10 ára og yngri verður 14.500 kr eða 4% hækkun.
Til þess að skoða skýrslu formanns SMELLIÐ HÉR: og ársreikning GR SMELLIÐ HÉR:
Heimild: grgolf.is
- mars. 31. 2023 | 16:30 Gary Player þarf að „grátbiðja“ til að fá að spila á Augusta National
- mars. 26. 2023 | 23:24 PGA: Sam Burns sigraði í WGC-Dell holukeppninni
- mars. 23. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kristín Sigurbergsdóttir – 23. mars 2023
- mars. 22. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Peter McEvoy og Davíð Arthur Friðriksson – 22. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stewart Cink ——– 21. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 15:00 Next Golf Tour: Sigurður Arnar sigraði á Adare Manor!!!
- mars. 20. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Arjun Atwal ——– 20. mars 2023
- mars. 20. 2023 | 08:45 Champions: Ernie Els sigraði á Hoag Classic
- mars. 20. 2023 | 08:00 LIV: Danny Lee sigraði í LIV Golf – Tucson
- mars. 19. 2023 | 22:30 PGA: Taylor Moore sigraði á Valspar
- mars. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Kristín Bachmann – 19. mars 2023
- mars. 19. 2023 | 14:00 PGA: Adam Schenk leiðir f. lokahring Valspar m/Fleetwood og Spieth á hælunum
- mars. 18. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (11/2023)
- mars. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bragi Brynjarsson og Marousa Polias – 18. mars 2023
- mars. 18. 2023 | 15:00 LET: Pauline Roussin-Bouchard sigraði í einstaklingskeppni Aramco Team Series – Singapore