Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 28. 2020 | 19:00

GR Íslandsmeistari golfklúbba í telpuflokki 15 ára og yngri

GR varð Íslandsmeistari í telpuflokki 15 ára og yngri á Íslandsmóti golfklúbba.

Mótið fór fram á Garðavelli hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi og lauk í gær, laugardaginn 27. júní 2020.

Í leik um Íslandsmeistaratitilinn sigraði sveit GR, A-sveit GM.

GA varð í 3. sæti, eftir sigur á GK í viðureign um 3. sætið.

Sjá má úrslit á Íslandsmeistaramóti golfklúbba í telpuflokki 2020 hér að neðan: 

1 sæti Golfklúbbur Reykjavíkur – Korpa
2 sæti Golfklúbbur Mosfellsbæjar -A
3 sæti Golfklúbbur Akureyrar
4 sæti Golfklúbburin Keilir
5 sæti Golfklúbbur Skagafjarðar – Golfklúbburinn Hamar
6 sæti Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar – A
7 sæti Golfklúbbur Mosfellsbæjar – B
8 sæti Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar – B
9 sæti Golfklúbbur Reykjavíkur – Grafarholt

Í aðalmyndaglugga: Íslandsmeistarar GR í telpuflokki í Íslandsmeistaramóti golfklúbba 2020